fimmtudagur, 29. október 2009
þriðjudagur, 27. október 2009
Hve oft á eiginlega að kjósa um þetta álver?
Nú eru komnar fram óskir um nýjar kosningar um stækkun álversins í Hafnarfirði? Sem var fellt eftirminnilega fyrir ca tveimur árum. Segjum sem svo að ef aftur verður kosið og segjum að ef svo illa færi að þessari gríðarlega öflugu kosningavél Rio Tinto tækist í krafti gríðarlegra fjármuna og með auglýsingaskrumi að ná meirihluta fyrir stækkun álvers er þá ekki spurning að kjósa í þriðja sinn að beiðni okkar sem erum á móti stækkun?Það hlýtur að vera kleyft svo fremi að náist að uppfylla skilyrði fyrir íbúakosningu? Tæknilega virðist því vera hægt að velta þessu máli áfram árum saman og fella eða samþykkja sömu tillöguna mörgu sinnum. Er þetta einhver borðtennisleikur? Þarf að samþykkja tillöguna nokkrum sinnum eða fella nokkrum sinnum, þarf hún eða vera felld eða samþykkt tvisvar eða þrisvar til þess að öðlast gildi eða á hún bara að gilda þegar hún hentar hagsmunum Río Tinto?
Hvað þá ef endalaust á kjósa um þetta sama mál, sem meirihluti bæjarbúa hefur sagt hug sinn í með formlegum hætti, finnst mönnum þá við hæfi að kjósa um þetta samhliða bæjarstjórnarkosningum? Við þau fjölmörgu sem erum í Sól í Straumi urðum vitni að kosningabarráttu stórfyrirtækis sem eyddi milljónum á milljónir ofan og efndi til "kosningabarráttu" þar sem kostað var til hundruðum milljóna, álverið bauð hverjum þeim starfsmanni sem vildi leggja barráttunni lið að gera það á fullum launum, sendu Bo í álpappír að hvert hafnfirsk heimili , gerðu fjölda glansauglýsinga og sýndu látlaust á dýrasta auglýsingatíma, héldu úti heilu flokkum manna sem hringdu á hvert hafnfriskt heimili og héldu úti persónunjósnadeild þar sem skoðanir bæjarbúa voru bókfærðar með skipulegum rafrænum hætti og kolólöglegum enda fór það svo að persónuvernd hafi afskipti af álverinu.
Þetta er grímulaus hagmunabarrátta stórfyrirtækis sem á ekkert skylt við lýðræði hvað þá þetta sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar kallar íbúalýðræði. Í samhengi "álverskosninga" verða bæjarstjórnarkosningar eins og auka mál enda ljóst að stjórnmálaflokkarnir í bænum hafi ekki efni á viðlíka "kosningabaráttu" og Rio Tinto - Eiga næstu bæjarstjórnarkosningar í Hafnarfirði að snúast um "galvaniseraða" eða "ekki galvaniseraða" frambjóðendur og munu frjáls framlög atvinnulífsins taka mið af því? Og hvar er þá lýðræðið svo ekki sé minnst á íbúalýðræðið?
miðvikudagur, 21. október 2009
Ég er orðin milljónamæringur og loksins einn sem var skotinn
Sem ég var að ákveða hvernig snekkju fjölskyldan skyldi koma sér upp þá mundi ég allt í einu mín fyrri samskipti á sviði ofurgróða sem voru aðallega við umkomulausar Afrískar ekkjur sem allar áttu það einnig sameignilegt að vera moldríkar en vegna einhverra hluta gátu þær ekki komið arfinum úr landi. Af milljónum Evrópubúa þá fannst þeim allmörgum tilhlýðilegt að eiga orðastað við mig um vel launuð viðvik tengt arfinum mikla. Það runnu hins vegar á mig tvær grímur og skrifaði ég í framhaldinu eftirfarandi pistil:
Fæ mikið magn af pósti frá fólki sem lent hefur í mikilli ógæfu. Yfirleitt hefjast bréfin á "My former husband general XXXXX sem var keyrður niður, fórst í flugslysi eða var handtekinn og lést í fangelsi, varð fyrir sprengjuárás, eða hvarf sporlaust og hefur ekki sést síðan.
Agaleg tíðindi sem því miður virðast engan endi ætla að hafa því nú nýverið fékk ég fregnir af einum til viðbótar sem yfirgefið hafði þessa jarðvist með byssukúlu í brjóstið.
Hinar afar sorgmæddu fjölskyldur hafa þó allflestar náð að bera harm sinn í hljóði (ef frá er talin hin afar sorglega umfjöllun um jarðvistarskipti ástvinanna í upphafi bréfanna) og tekið til við að ná hinum stórfelldu eignum hins framliðna úr hinu virðulega Nígeríska eða Gahaniska bankakerfi sem ku sýna mikla óbilgirni nema ef vera vildi að einhver góðhjartaður vesturlandabúi vildi vera svo vænn að þiggja nokkrar milljónir til að hjálpa örlítið við að koma nokkrum milljörðum úr landi .
Erindin því ekki beint ósk um hluttekningu og aðstoð í sorgarferlinu - lífið verður að halda áfram þó að einn og annar generálinn fari yfir móðuna miklu - hins vegar óþarfi að láta aurana fara líka - ætlum við að bera ábyrgð á því að ekkjan og fjölskylda hins mikla XXXXX þurfi að borða hrísgrjónavelling það sem eftir er, eins og sauðsvartur almúginn?
Nú eru góð ráð dýr. Var bent á eitt sem virkar þokkalega. Fékk mér sem sagt forritið I hate spam og viti menn sorgarsögum frá Nígeríu og Ghana hefur fækkað verulega - getur verið að þessi fjölmörgu og margþættu áföll séu bundin fáum fjölskyldum? Eða eru bara svona fáar email adressur í Afríku? Eða er einhver að plata mann? Veit það ekki?
fimmtudagur, 15. október 2009
Brennuvargarnir - frábær sýning
Brá mér í Þjóleikhúsið í gærkvöldi - erindið að sjá forsýningu á leikritinu Brennuvargarnir eftir Max Frisch. Óþægilega mikil skírskotun í samtímann þó svo að verkið hafi verið skrifað fyrir margt löngu. Frábær leik- og hljóðmynd. Afburða leikarar með Eggert Þorleifsson fremstan meðal jafningja. Fín sýning, fínn stígandi og áleitið viðfangsefni. Sem sagt gott leikhús og sýning sem á erindi við alla ekki síst á þessum síðust og verstu - hvet fólks til þess að láta þessa sýningu ekki fram hjá sér fara.
laugardagur, 10. október 2009
Af "áhangendaáráttu"
Á meðan engin segir sorry og engin gengst við ábyrgð á hruninu þá verður ekki sátt í íslensku samfélagi - Sorgleg málefnafátækt í þinginu - Halda menn með sínu liði algerlega óháð því sem á undan er gengið? - Er stjórnmálabarátta einhverskonar fótboltaleikur sem byggir á "áhangendaáráttu" fremur en almennri skynsemi?Veit það ekki en ég skil ekki fylgistölur stjórnmálaflokka þessi dægrin sem ekki eru í neinu samræmi við "aldur og fyrri störf" viðkomandi flokka. Hin blinda ást ruglar fólki í rýminu og það jafnvel svo mikið að sómasamlegt ræstingarfólk fær það óþvegið fyrir það eitt að reyna að þrífa upp óhreinindin eftir ástmöginn.
þriðjudagur, 6. október 2009
25 ár frá BSRB verkfallinu
http://www.bsrb.is/um-bsrb/frettir/nr/1555/
miðvikudagur, 30. september 2009
Skál og velkomin kæru foreldrar
"Foreldrakvöld Frístunda Íslands mun bjóða upp á kynningar og aðra sérstaka viðburði fyrir foreldra" segir á heimasíðu Frístunda Íslands. Að öðru leiti segir útgefandi (sem ekki kemur fram á heimasíðunni hver er?) að síðan sé " Ný og spennandi leið til að nálgast upplýsingar um innan og utandyra frístundir fyrir börn og unglinga á höfuðborgarsvæðinu."Foreldrastarfið er einhæft í meira lagi, samkvæmt umfjöllun á þessari barna og unglingasíðu, svo ekki verði meira sagt. Foreldrakvöldin eru sem sagt eingöngu áfengis"kynningar"(auglýsingar).
"Fyrsta kynningin verður vínsmökkun í samstarfi við X . X heldur úti vefsíðunni XXX og er höfundur bókarinnar XX sem kom út árið 2000. Á námskeiðinu mun X kenna okkur að meta gott léttvín frá öllum heimshornum. Ekki missa af þessu tækifæri!" Nú og svo er önnur "vínkynning" ... og svo hin þriðja .. og fjórða.
Hvílík vitleysa ... eða smekkleysa öllu heldur. Er barnapössun innfalin í "kynningunum" kann einhvert foreldrið að spyrja ? og ætli fyrirtækið Móðurást sem auglýsir (sjá mynd) á síðu Íslenskrar frístunda hafi kosið að vera "samsíða" áfengisauglýsingum. Sorglegt þegar að ritstjórum er ekki ljós ábyrgð sín og virða að vettugi 20. grein áfengislaganna sem sett voru m.a. út frá velferðarsjónarmiðum barna og unglinga. Einstaklega óviðeigandi í tilfelli eins og þessu þar sem gera má ráð fyrir mikilli umferð barna og ungmenna um þennan vef.
mánudagur, 28. september 2009
Alþjóðlegur miðill - "frábær þýska" hjá "mér"
Wish Lesern einen guten Rutsch ins neue Jahr und ich danke dem Leser Feedback-Seite der "Anzug" für das Jahr. Haben in der Regel eine positive, aber natürlich manchmal muss man Wort in das Ohr erhalten. Merkilegast ist wahrscheinlich der ein und demselben Artikel kann geðbrigðum reichen in beide Richtungen führen und ist daher in einer Zeit, in der Meinung der Person, die besten oder schlimmsten Fall den Artikel gelesen hat.
Was dient dann auch seinen Zweck ist einfach zu lassen, den Geist zu verschiedenen Fragen, die nach oben wandern sind in meinem Kopf jeder Zeit. Preis læriföður meine KHI dem Gebiet der Informationstechnologie Dr. Salvöru Gissurardóttur. Berger Gissurardóttur immer dankbar für ihre Einführung in dieses große Technologie, das Internet.
Solidarnoz - Konsens geht in diesem ersten Jahr und pistli nicht vanþörf auf, dem Jahr, war es in EU-Angelegenheiten zu leiden hat, werden beide traurig und extrem schwierig. Verzögerte Auswertung erheblich suchte die Widerstandsfähigkeit der Menschen und sollte nicht überraschend.
Und wenn die Schläge gegen sie ist nichts weiter als im Gleichgewicht stehen fest zusammen in Gruppen statt ersetzen und stellen Sie Stummel in den Wind auf jedem undanhaldi. Viðsemjanda Unser Ziel ist es offensichtlich, halten láglauna Politik und damit auch eine zerdrückte Trades Bewegung nach unten die am weitesten verbreitete und die meisten Einheiten.
Für Löhne Ausschuss ist insgesamt óskastaða wenn bæjarstarfsmenn in dem die meisten Unternehmen, die kleinen und schwachen Einheiten, die mit einem kleinen Druckverband anlegen und können individuell wenig getan Einar. LN Kosten sehr gering, wahrscheinlich nur vorübergehend Diskriminierung während dies zu gehen vorbei, die nur wenig tut, wenn auf lange Sicht.
Angestellt Typ launanefndar Gemeinden einseitig abschaffen Protokoll Nr. 7 am 1. Dezember 2002 über die Harmonisierung der Löhne Universität Gruppen innerhalb bæjarstarfsmannafélaga mmt gesamte Zusammensetzung, sagte natürlich sagen muss, dass alle in diesem Zusammenhang.
Launanefnd lokalen insgesamt fünf Personen und fünf Produkte, die vollständig befugt Gemeinschaft in dem Land zu gehen, haben die Gemeinden nicht einmal tragen einen Vertrag für die Zulassung in der bæjarstjórnum - Ursache ist absolut.
Das Ergebnis wahrscheinlich als "fein" Zweck soll eine Entschädigung erhalten harten Felsen Ausschuss láglauna politischen Deal mit hoher ágætum. Ein Beispiel dafür ist, dass STH Partnern zusammenarbeiten, die mit dem Staat, in ähnlichen Arbeitsplätzen und STH Partner mit bæjarfélaginu werden und sogar deutlich höhere Löhne als bæjarstarfsmenn innerhalb von STH.
Es gibt keinen Vorteil in der Position für die Arbeitnehmer stehen zusammen und kämpfen gegen den Wind. Es ist absolut notwendig für die März-Kontrakte nk gleiten und dann haben wir es anwenden muss. Um es mag die Menschen treffen, um zusammen zu stehen. Es geschieht nicht von selbst in dieser Hinsicht, macht es das kein Mensch und es gibt nichts in unserer Hand. Trades "Bewegung" ist keine Macht, außer durch samhentra Mitglieder. Der Fall ist nicht komplizierter als diese. Werden Sie aktiv und Stand-Team und wird uns auch in den harten Kampf, der vor uns liegt farnast
fimmtudagur, 24. september 2009
Hvaða áskrift hentar þér ...
... spyr Mogginn? Engin svara ég tafarlaust. Davíð Oddsson í stól ritstjóra Morgunblaðsins er ekki akkúrat það sem íslensk þjóð þarfnast. Málsvörn hrunsins og umfjöllun a la Davíð Oddsson og hans kumpána dag út og dag inn verður engum bjóðandi, pólitískt klám - Afturhvarf til hinnar grímulausu hagsmunabaráttu sægreifa og efstu laga viðskiptalífsins, sem meðal annars mun felast í linnulausum og ómaklegum árásum á það fólk sem nú um stundir gerir ekkert annað en að þrífa upp "messið" eftir hugmundafræðilegt gjaldþrot þeirra stefnu sem ritstjórinn stóð fyrir. Nei takk ómögulega hef ekki hug á því að styrkja slíkt blað.Mogginn a la Davíð Oddsson og kornfleksið að morgni dags fer ekki saman - læt ekki kornfleksið líða fyrir það - segi upp Mogganum frá og með dags dato . Velti fyrir mér hvort að 3.000.000.000 króna skuldaniðurfelling á skuldum Moggans í febrúar s.l. sé ekki í raun hæsti flokkstyrkur Íslandssögunnar. Illa farið með mikið fé á erfiðum tímum.
Sjá pistill frá 2. febrúar s.l. "Ríkisrekin frjálshyggja"
miðvikudagur, 16. september 2009
Af pólitísku alzheimer
Íslensk pólitík er i pattstöðu – fyrir það fyrsta þá muna sjálfstæðismenn og framsóknarflokkur ekkert eftir pólitísku handlangi sínu í fyrri ríkistjórnum, sem leiddi okkur í mestu kreppu s.l. 150 ára eða svo. Í öðru lagi gefa menn sér upp þær forsendur að í efnahagsmálum sé hið algerlega frjálsa val kostur í stöðunni. Vegna þeirrar stefnu sem þessir flokkar kannast ekki við og vita ekkert af þá er Ísland einfaldlega ekki vaðandi í möguleikum hvað varðar leiðir út úr kreppunni. Stjórnmálaumræðan hefur í fáu tekið mið af þessu ef marka má umræður á Alþingi í sumar. Hið pólitiska alzheimer gerir það að verkum að menn kannast ekki við neitt úr fortíðinni og umræðunni má líkja við pælingar um ýmsar tegundir af sumarfatnaði til þess að fara í út í sólina? þegar að hinn napri raunveruleiki er fimbulkuldi og vetrarhörkur. Heimur spádeilda bankanna um hið eilfía sumar í efnhagsmálum var tálsýn, „auglýsingarveruleiki“.
Umræður á Alþingi hafa því verið á sorglega lágu plani og í engu til þess fallnar af leiða þjóðina úr þessu ógöngum. Slíkt er ábyrgðarleysi og ber vott um pólitískt alzheimer eða meðvirkni á heimsmælikvarða „það er/var ekkert að“ það eru bara svo léleg stjórnvöld núna ? – veit það ekki en veit þó að gamaldags þrætubókarlist a la umræður sumarsins skilar engu - nema ennþá minni tiltrú á stjórnmálamönnum sem kannski var nú ekki mikil fyrir. Pólitískar skotgrafir eru ekki það sem þjóðin þarf á að halda.
laugardagur, 12. september 2009
Af hafnfirskum forvörnum
Margir Hafnfirðingar muna eftir „Stöðinni“ eins og hún var hér í eina tíð. Var eins og Hallærisplanið í Reykjavík, hluti af rúntinum á stór Hafnarfjarðarsvæðinu, vinsæll meðal unglinga m.a. vegna þess að þarna var endastöð Landleiða og sjoppan var opin langt fram eftir nóttu. Oft var margt um manninn, mikil ölvun og jafnvel slagsmál. Þó svo að ástandið um miðjan níunda áratuginn hafi verið betra en fyrr á árum þá var ástandið alls ekki gott. Menn höfðu sérstaklega áhyggjur af yngstu unglingunum sem einnig bjuggu við nokkurt aðstöðuleysi í tómstundum sínum . Gömul verbúð (Æskó) á Einarsreitnum sem bærinn hafði tekið upp í gjaldþrotaskiptum var eina athvarfið. Þegar að ákveðið var að gera átak í málefnum unglinga í lok nýjunda áratugarins þá var einnig ákveðið að freista þess að sporna við neikvæðri menningu eins og vissulega var raunin á Stöðinni. Það var ekki gert á einni nóttu og það var heldur ekki neinn einn aðili öðrum fremur sem að því stuðlaði. Það var einfaldlega gert með víðtæku samtarfi allra þeirra sem unnu að unglingamálum með einum eða öðrum hætti. Æskulýðsráð, félagsmálayfirvöld, Lögreglan, skólayfirvöld og ekki síst foreldrasamfélagið tók höndum saman og með samstilltu langtíma átaki tókst að breyta ástandinu algerlega. Foreldrasamfélagið sýndi og sannaði að með afskiptum og einföldum skilaboðum má færa ástand til hins betra. Oft er unglingum kennt um að setja sér ekki mörk sem þau vita ekki hver eru. Það er hlutverk foreldrasamfélagsins og þegar að það gerir það eins og reyndin var varðandi Stöðina forðum þá einfaldlega virkar slíkt.
Æskulýðsráð Hafnarfjarðar sinnti forvörum af miklu kappi á þessum árum (meðfram öðrum verkefnum) m.a með stofnun Götuvitans (útideildar), fræðslufundum fyrir foreldra o.fl. Félagsmálastofnun, skólarnir og Lögreglan voru virkir þáttakendur í fræðslustarfinu. Ekki síst átti þetta við í efnahagslægðinni um miðjan tíunda áratuginn en í slíku ástandi myndast óróleiki í unglingasamfélaginu eins og raunin varð þá og kom t.d. fram í mjög aukinni áfengis- (Landa) og vímuefnaneyslu unglinga.
Það var heillaspor þegar að bæjaryfirvöld ákváðu að setja á stofn sérstaka forvarnarnefnd og setti þar með þennan mikilvæga málaflokk á eina hendi. Forvarnir eru langtímaverkefni sem snúast um að samstilla viðhorf og taka í tauma löngu áður en illa fer. Því miður er það svo að oft er blásið í herlúðra á elleftur stundu með afar takmörkuðum árangri. Tiltekin atvik geta vissulega haft mikið forvarnargildi en til langframa virkar það ekki þar sem sífellt nýjar kynslóðir vaxa úr grasi auk þess sem margt ungt fólk samsamar sig ekki með viðkomandi atvikum sem verða þá frekar séð sem slys fremur en myndgerving tiltekins þjóðfélagsástands s.s. aukinnar vímuefnaneyslu.
Forvarnarstarf í Hafnarfirði hefur síðustu ár verið til fyrirmyndar og með þeim hætti að eftir hefur verið tekið . Fyrirkomulag hér í bæ hefur verið öðrum bæjarfélögum fyrirmynd hvað varðar uppbygginu í málaflokknum. Samspil rannsókna og aðgerða er meðal þess sem einkennir starfið hér í Hafnarfirði . Rannsóknir R&G ( Rannsókn og greining) sem gerðar eru á tveggja ára fresti meðal unglinga efstu bekkja grunnskóla á öllu landinu hafa verið leiðarljós. Með því að greina niðurstöður fyrir hvert skólahverfi í Hafnarfirði og vinna forvarnarstarfið út frá þeim forsendum þá hefur tekist að koma í veg fyrir þróun sem hefði geta leitt til verri vegar. Með markvissum vinnubrögðum s.s foreldrasamstarfi , æskulýðstarfi o.fl. hefur því tekist að hafa verulega áhrif til hins betra í viðkomandi hverfum milli kannana. Því miður er það oft þannig að þegar að vel gengur þá er gengið að slíku sem vísu og ekki horft til allrar þeirrar sífelldu vinnu sem visslega fer fram til þess að halda þessum málum í eins góðu horfi og raun ber vitni.
Sterk forvarnarnefnd ásamt góðum starfsmanni er grundvöllur þess að vel gangi. Forvarnarnefnd sem hefur skýrt pólitískt umboð sem embættismaður sækir framkvæmdavald sitt til er forsenda velgengi á þessu sviði. Með nefndinni er tryggt að forvarnarmál fá vægi en lendi ekki sem aukamál í einhveri annari nefnd og hverfi í skugga annarra óskyldra mála. Forvarnarfulltrúi verður „landlaus“ hvað varðar umboð og þarf að leita til margra nefnda. Skilvirkni verður minni, ákvarðanataka verður mun flóknari og síðast en ekki síst er hætta á að áralöng reynsla og þekking fari forgörðum. Forvarnastarf gegnir mikilvægu hlutverki og ekki síst á tímum eins og þessum þar sem æskan er sérstakur áhættuhópur. Að leggja niður forvarnarnefnd var misráðið og hefur auk þess óverulegan sparnað í för með sér. Eitt af verkefnum forvarnarnefndar þessi dægrin ætti að vera stefnumótun um hverning bæjaryfirvöld munu taka á auknu atvinnuleysi 16 – 20 ára ungmenna sem er sérstakur áhættuhópur umfram aðra atvinnulausa. Annað ætti að vera að búa foreldrasamfélagið undir breytta tíma í unglingaumhverfinu og svona mætti lengi telja. Verkefni eru ærin og ekki vænlegt til árangurs að leggja ára í bát.
miðvikudagur, 9. september 2009
Næsti formaður BSRB?
Í október verður haldið BSRB þing. Sem kunnugt er þá mun Ögmundur Jónasson láta af störfum sem sem formaður. Ögmundur hefur reynst afar farsæll leiðtogi og gert BSRB að virku afli í íslensku samfélagi. Í hans tíð hafa margir sigrar unnist og mörgum misundarlegum ráðagerðum stjórnvalda gegn hagsmunum opinberra starfsmanna og launamanna almennt hefur verið hrundið á bak aftur. Þvert á það sem pólitískir andstæðingar Ögmundar hafa haldið fram þá hefur hann átt náið og gott samstarf við "allra flokka fólk"innan BSRB enda forystan skipuð fólki úr öllum áttum og reyndar ekkert endilega flokksbundnu fólki. Þetta breiða samráð og samstarf er einfaldlega galdurinn á bak við farsæld formannsins og velgengni BSRB á umliðnum árum. Verkalýðsbarátta spyr ekki um flokkskírteini, hún spyr einfaldlega um hverjir eru hagsmunir launafólks og hverning eru þeir best varðir.Nú vaknar óneitanlega sú spurning hver verður næsti formaður BSRB? Þegar að þetta er ritað er engin búin að gefa opinberlega kost á sér en heyrst hafa nöfn eins og Árna S Jónssonar formanns SFR, Garðars Hilmarssonar formanns Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Elínar Bjargar Jónsdóttur formanns FOSS og Samflots bæjarstarfsmanna, Örnu Jakobínu Björnsdóttur formanns Kjalar og Snorra Magnússonar formanns Landsambands lögreglumanna.
Allt er þetta sómafólk og þau fjögur fyrstnefndu þekki ég vel í tengslum við störf mín innan BSRB um langa hríð. Öll eru þau fulltrúar stærri heilda innan BSRB og ef að líkum lætur þá mun forystumaður fjölmennasta félagsins sigra í formannskjöri en með minna en 50 % fylgi sökum mikillar dreifingar atkvæða. Ef bæjarstarfsmenn sameinast um kandidat þá vinnur sá en það verður að teljast harla ólíklegt að slíkt verði þó svo að ekkert sé útilokað í þeim efnum. Það má jafnframt velta fyrir sér hvort æskilegt sé að formaður komi úr stærstu félögunum. Ögmundur Jónasson var fulltrúi Starfsmannafélags Sjónvarpsins sem var og er mjög lítið félag þrátt fyrir sameiningum við Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins. Í þessu mikilvæga embætti er nauðsynlegt að geta hafið sig yfir félagsheildir innan BSRB og formaður verður að vera sameiningartákn og ótvíræður fulltrúi allra félaga og félagsmanna innan BSRB.
Treysti mér ekki í að spá fyrir um lyktir en veit að verkefnið verður vandasamt, hver sem við því tekur, og ekki síst það að taka við af sterkum formanni sem naut nánast 100% trausts þing eftir þing. Mun að sjálfsögðu fylgjast með með framvindu mála.
mánudagur, 31. ágúst 2009
Af pólitísku kennitöluflakki
Það verður að segjast eins og er að oft hefur Sjálfstæðisflokkurinn átt betri daga í íslenskri pólitík en nú um stundir. Málflutningur formannsins í Valhöll um daginn hljómar eins og að flokkurinn hafi fengið nýja kennitölu og komi ekki lengur við gamla kennitalan eða mál henni fylgjandi. Þarna var um að ræða afneitun á heimsmælikvarða. Er auðvitað absúrd eins og reyndar sneypirför aðal hugmyndafræðings flokksins um daginn í mótmæli gegn sjálfum sér á Austurvöll með bók sína „Svartbók kommúnismans“ undir hendinni. Fullkomlega misheppnað PR hjá hugmyndafræðingnum ,var svona álika „gáfulegt“ eins og að kveikja sér í sígarettu í púðurgeymslu. Hugmyndafræðilegt gjaldþrot er staðreynd og bjartsýni að halda að gamla þrotabú frjálshyggjunnar nýtist eitthvað inn í framtíðina. Oddur Ólafsson heitinn og ýmsir aðrir mætir menn héldu uppi merkjum samhygðar og félagshyggju innan Sjálfsstæðisflokksins í eina tíð. Þá var öldin önnur og engin kannast við slíkt lengur, núna eru tímar frjálshyggjunnar og fyrirheitnu löndin eru Argentína og Chile. Hinn pólitíski kompás íhaldsins er í algeru lamasessi og bendir einungis á „ysta hægrið“ og meðan að svo er þá á flokkur lítið erindi við samtímann og fjarri því að vera það afl sem einu sinni var.
þriðjudagur, 25. ágúst 2009
Unglingalýðræði en bara þegar að vel gengur
Hvers vegna er verið að tala um unglingalýðræði og til hvers er fyrirkomulag eins og Ungmennaráð Hafnarfjarðar ef það hefur ekkert um brýn hagsmunamál sín að segja þegar á reynir ? Ungmennin eru ekki einu sinni spurð álits þegar að unglingastarfsemi í bæjarfélaginu er skorin verulega niður og langt umfram annan niðurskurð ?
Ég hef lengi verið talsmaður þess að lækka kjörgengi í 16 ára aldur og með því gefa ungu fólki raunhæfa möguleika á því að hafa áhrif á mótun samfélagsins og ekki síst á þau mál sem á þeim brennur – Unglingalýðræði í núverandi mynd virkar ekki þegar á móti blæs - Tel því einu raunhæfu leiðina að lækka kjörgengi og því fyrr því betra. Veit sem er að við slíkt myndu málefni unglinga ekki verða sú afgangsstærð sem því miður vill verða – Það hefur ekkert samfélag efni á slíku fálæti og allra síst á tímum eins og þeim sem við lifum á.
miðvikudagur, 19. ágúst 2009
föstudagur, 7. ágúst 2009
miðvikudagur, 29. júlí 2009
Sniðgöngum auglýstar áfengistegundir
Núna í aðdraganda Verslunarmannahelgarinnar munu áfengisauglýsingar dynja á börnum og ungmennum og ekki síst í þeim miðlum sem sérstaklega höfða til æskunnar. Réttindi barna og unglinga eru fótum troðin og þau njóta ekki lögvarinna réttinda. Við foreldrar og forráðmenn barna og unglinga og aðrir sem bera hag þeirra fyrir brjósti erum ráðþrota gagnvart þessu. Það er auðvitað illa komið þegar að hagsmunaaðilar í krafti gífurlegs fjármagns fara sínu fram, óháð lögum, fjölda dóma og almennu siðferði.Við foreldrar, afar og ömmur og allir þeir sem bera hag æskunnar fyrir brjósti við þurfum að sýna hug okkar í verki gagnvart þessum ólöglegu áfengisauglýsingum og sniðgagna með öllu auglýstar áfengistegundir – Á maður að eiga viðskipti við fyrirtæki sem otar áfengi að börnum manns með ólöglegum áfengisauglýsingum? Það er ekki við hæfi.
Foreldrar – forráðamenn og allir þeir aðilar sem hafa velferð æskunnar að leiðarljósi - Sýnum hug okkar í verki - Sniðgöngum auglýstar áfengistegundir
þriðjudagur, 21. júlí 2009
Mikilvæg áskorun frá FFF
Sjá ennfremur pistil frá 18.nóvember 2008 http://addigum.blogspot.com/2008/11/skan-erfium-tmum.html
"Stjórn Félags fagfólks í frítímaþjónustu hefur sent sveitarstjórnum á Íslandi eftirfarandi áskorun:
"Félag fagfólks í frítímaþjónustu skorar á sveitarstjórnir að standa vörð um starfsemi félagsmiðstöðva og frístundaheimila fyrir börn og unglinga á þeim umbrota- og óvissutímum sem Íslendingar lifa nú og tryggja um leið jöfn tækifæri til þátttöku í fjölbreyttu frítímastarfi. Félagið varar við afleiðingum þess að skerða framlög til frítímastarfs barna og unglinga hjá sveitarfélögunum.
Sveitarstjórnir eru langstærsti stuðningsaðili við frístundastarf barna og unglinga. Á vegum sveitarfélaganna er komið til móts við þarfir ófélagsbundinnar æsku, sérstaklega þeirra barna og unglinga sem finna síður sína fjöl hjá íþróttafélögum eða frjálsum félagasamtökum. Þörfum barna og unglinga sem standa höllum fæti er nær eingöngu mætt í frítímaþjónustu sveitarfélaganna. Sú starfsemi er því kjarninn í öllu forvarnarstarfi á Íslandi. Öflugt frístundastarf stuðlar að auknum samskipta- og félagsþroska barna og unglinga og er lykilatriði þegar hlúð er að komandi kynslóðum sem munu bera uppbyggingu þjóðfélagsins í náinni og fjarlægri framtíð.
Innlendar og erlendar rannsóknir sýna að þátttaka í skipulögðu félags- og tómstundastarfi undir handleiðslu hæfra leiðbeinenda dregur úr líkum á hvers kyns áhættuhegðun, s.s. áfengis- og vímuefnaneyslu og ofbeldi. Ávinningur af því að skerða starfsemi þar sem börn og unglingar eru virkir þátttakendur er því enginn. Mikill ávinningur yrði hins vegar að því að styrkja slíka starfsemi.
Félagið bendir jafnframt á að Ísland er aðili að Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þann 16. mars sl. var samþykkt þingsályktunartillaga um lögfestingu sáttamálans á Íslandi. Samkvæmt 31. grein sáttmálans viðurkenna aðildarríkin rétt barns til tómstunda og til að stunda leiki og skemmtanir sem hæfa aldri þess. Auk þessa skuldbinda aðildarríki sig til að virða og efla rétt barns til fullrar þátttöku og stuðla að viðeigandi og jöfnun tækifærum til tómstundaiðju."
F.h. Félags fagfólks í frítímaþjónustu,
Eygló Rúnarsdóttir, formaður
Afrit: Félagsmálaráðherra, Heilbrigðisráðherra, Menntamálaráðherra og Umboðsmaður barna"
þriðjudagur, 14. júlí 2009
Jón Hlöðver Áskelsson
... tónskáld er praktíserandi menningarveita sem gerir það að verkum að maður á erindi oftar en ella til Akureyrar. Sá og heyrði í Kvartett Inga Rafns í Ketilhúsinu s.l fimmtudag þar sem téður Jón Hlöðver kynnti kvartettinn til leiks. Fínir spilarar m.a Sigurður Flosason sax, Kjartan Valdimarsson píanó og einn efnilegast bassaleikari landsins Valdi Kolli. Mjög fínir tónleikar en ekkert einsdæmi því tónlistarlífið á Akureyri er í miklum blóma og hefur verið um margra ára skeið. Minnist með gleði Djangó jazz hátíðar sem ég sótti fyrir nokkrum árum og var sérstaklega vel heppnuð. Þetta og margt fleira sprettur ekki fram af sjálfu sér, það er fyrir tilstilli manns eins og Jón Hlöðvers og hans samstarfsmanna sem auðugt tónlistarlíf verður að veruleika. Og slíkt fólk er mikill akkur fyrir sitt bæjarfélag og þess nýtur Akureyrarbær ríkulega.mánudagur, 22. júní 2009
Dópið og vélainnflutningur
Þannig var að glöggur starfsmaður í tollaeftirliti uppgötvaði að fyrirtæki eitt, vélasala, flutti inn tölvert magn af gröfubúnaði og íhlutum í vinnuvélar, sem ekki var í frásögu færandi nema af þeirri ástæðu einni að þrátt fyrir töluverðan innflutning þá var lítið selt og auk þess til mun betri framleiðsla innanlands.
Maðkur í mysunni -hugsaði okkar maður og tilkynnti efasemdir sínar til yfirvalda alls óvitandi um að með því kæmi hann upp um stórfelldan fíkniefnainnflutning. Við rannsókn kom í ljós að nánast allur vinnuvélabúnaðurinn sem fluttur var inn var stútfullur af eiturlyfjum og flest var þetta hlutað í sundur, dópið hirt og græjunum oft hent.
Ekki ætla ég að halda því fram að Vélasalan R Sigmundsson sé í þessum bransa en óneitanlega finnst manni í ljósi sögunar að öllu umhverfi þessara glæpamanna sem stunda eiturlyfjainnflutning sé gaumur gefin - ekki satt?
