Íslandsleikar Special Olympics í fótbolta voru haldnir laugardaginn 25. september í Kaplakrika í Hafnarfirði en leikarnir eru haldnir í samvinnu við knattspyrnudeild FH. Brá mér á svæðið enda með formlegt boð um slíkt frá vini mínum honum Þorgeiri markverði og varnarjaxl í liðinu Suðra frá Selfossi. Frábær fótbolti þar sem leikgleðin var í fyrirrúmi. Skemmtilegt mót - þakka kærlega fyrir mig.
sunnudagur, 26. september 2010
mánudagur, 13. september 2010
Tæknilegt sakleysi en siðferðileg sekt ?
Það dapurlegt að fylgjast með umræðum um niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis. Því miður er af nægu að taka og ljóst að framkvæmdavaldið og "eftirlitsiðnaðurinn" eins og ýmsir stjórnmálamenn nefndu stofnanir eins og Fjármáleftirlitið, gjörklikkaði. Æðstu stjórnendur framkvæmdavaldsins ráðherrarnir hljóta að bera ábyrgð a.m.k. er það svo í flestum þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við og flokkast til siðaðra samfélaga. Umræður um landsdóm bera hæst um þessar mundir og hver lögfræðingurinn af öðrum dregin fram á sjónarsviðið og engu líkara en að ein alsherjar smjörklípa sé í uppsiglingu. Nú ber svo við að ekki er hægt að fara eftir orðanna hljóðan í stjórnarskránni m.a. þar sem ákvæðið er svo gamalt og flókið? Eru lögfræðingar fyrst núna að glíma við torræðan texta. Ég hélt að það væri eitt af aðal viðfagsefnum stéttarinnar? Ekki veit ég hverning þetta endar? Ömurlegast verður ef að menn verða "dæmdir" lagatæknilega saklausir enn af megin þorra almennings taldir siðferðilega sekir. Það yrðu "tæknileg mistök" af versta toga?
fimmtudagur, 2. september 2010
Baráttuhópur um bætt veðurfar
... er starfandi í félagsmiðstöðinni Hæðargarði í Reykjavík. Fremstur meðal jafningja í þeim hópi er veðurfræðingurinn góðkunni Páll Bergþórsson fv. Veðurstofustjóri. Hópur þessi, sem samanstendur af baráttuglöðum heldri borgurum, hittist reglulega og leggur á ráðin.
Ekki verður annað sagt en að helsta baráttumál hópsins hafði gegnið eftir a.m.k. í sumar sem sýnir í hnotskurn hverning samtakamátturinn og hin óbilandi barátta skilar verulegum árangri. Eitt besta sumar í áraraðir staðreynd og ekki síst fyrir tilstilli hópsins. Það er því von mín að baráttuhópurinn um bætt veðurfar slaki ekki á í neinu og að við uppskerum fyrir vikið góðan vetur.
Ekki verður annað sagt en að helsta baráttumál hópsins hafði gegnið eftir a.m.k. í sumar sem sýnir í hnotskurn hverning samtakamátturinn og hin óbilandi barátta skilar verulegum árangri. Eitt besta sumar í áraraðir staðreynd og ekki síst fyrir tilstilli hópsins. Það er því von mín að baráttuhópurinn um bætt veðurfar slaki ekki á í neinu og að við uppskerum fyrir vikið góðan vetur.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)