Það eru ekki allir með tvö eistu! Hlustaði á umræður um áfengisfrumvarpið á Alþingi í dag (23.feb.2017) Var athyglisvert í meira lagi. Framsaga fyrsta flutningsmanns frumvarpsins, sem hóf þessa sjöundu eða áttundu tilraun Sjálfstæðismanna til að koma brennivíni í búðir, var einstök. Þingmaðurinn fór um víðan völl en skautaði afar létt yfir allt sem laut að lýðheilsu og velferðarsjónarmiðum en hafði í hávegum hin ítrustu viðskiptasjónarmið. Og af því að engin (lesist áfengisbransinn) tæki mark á lögum um bann á áfengisauglýsingum þá ætti bara að leyfa þær samhliða því að koma brennivíni í búðir.
Einhverstaðar
þarna innan um í framsögunni var umfjöllun um rannsóknir almennt á þessu sviði sem
viðkomandi kvað nánast almennt eiginlega
ekkert mark á takandi, þá væntanlega rannsóknum frá Alþjóðheilbrigðisstofnuninni
WHO, Landlækni og fleirum. Frummælandi taldi flestar rannsóknir vera mest megnis einhver andstæð
meðaltöl út og suður, miðgildi m.m. ,
tók nokkur dæmi, lagði saman, deildi og lokaði þeim þætti ræðunnar með umfjöllun um að þetta væri ekki svona
flókið. Kom að lokum, máli sínu til
útskýringa, með dæmi um þá fullyrðingu að
mannkynið hefði að meðaltali bara eitt eista? sem væri auðvitað „rétt“ en væri þekking
sem hefði engan tilgang? Afhjúpaði með þeirri
staðhæfingu sinni allnokkra vanþekkingu á sviði vísinda og aðferðafræða. Sem
gefur auk þess fyllsta tilefni til þess að setja málið í svolítið „Halla &
Ladderí“
Því þó svo að þingmaðurinn kunni af hafa tvö eistu þá er
slíkt ekki algilt, margar manneskjur hafi misst eistu eitt eða tvö af
margvíslegum ástæðum og þvi rétta svarið að mannfólkið hefur minna en eitt ( <
1 ) eista að meðaltali. Og ef við höldum okkur áfram við þessa líkingu og
segjum, sem dæmi, að fram komi í rannsókn hérlendis að meðaltalsfjöldi eistna á Vestfjörðum væri mun
lægri en landsmeðaltal eistna, t.d. 0,6 per manneskju í stað 0,95, þá þyrfti að rannsaka málið enn frekar og
grípa til viðeigandi aðgerða því ekki væri slíkum eistnaskorti viðbætandi á aðra
búsifjan Vestfirðinga síðustu árin. Með
öðrum orðum ekki vanmeta meðaltölin, miðgildin o.fl.
En að öllu gríni slepptu þá get ég ekki sem einarður
andstæðingur þessa frumvarps verið annað en ánægður með framsöguræðuna, ekki
það að ég hafi verið sammála því sem þar kom fram, þvert á móti, ég er ósamála
ræðumanni og flytjendum þessa frumvarps í öllum meginatriðum, ræðan sýndi í
hnotskurn og með skýrum hætti, og í því liggur mikilvægi hennar, hvað þetta frumvarp er tilgangslaust, illa ígrundað og algerlega úr
takt við öll lýðheilsu- og velferðarsjónarmið í okkar samfélagi – Hvet alla til
þess að kynna sér umræðu dagsins á Alþingi því þrátt fyrir þessa einstöku ræðu
kom margt afar athyglisvert fram í ræðum margra þingmanna
Sjá umfjöllun á
vefsíðu Alþingis - http://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20170223T142050