mánudagur, 9. september 2013
Brauðmolahagfræði og kjarasamningar
Á næstu vikum og misserum munu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins ótt og títt kveða sér hljóðs á almennum vettvangi í þeim tilgangi að boða váleg tíðindi í íslensku efnahagslífi. Þeirri vá verði einugs mætt með því að taka snarlega upp að nýju brauðmolahagfræðina. Stefna sem að flestra mati var talið að hefði dáið drottni sínum með hruninu? (http://addigum.blogspot.com/2008/10/er-virk-fyllibytta-stjrn-s.html) Þessi kenning gengur út á það að fyrirtæki í landinu eigi helst ekki að borga neitt til samfélagsins og fái frekar ríkisaðstoð í formi skattaafsláttáttar m.m. Allt gengur þetta út að það að fyrirtæki græði sem allra mest því þá fjárfesti það og með fjárfestingum myndist einhver gróði sem þá þarf að nýta í aðrar fjarfestingar. Þegar að eigendur fyrirtækjanna eru búnir að braska með auranna eins og frekast er unnt, kaupa og selja fyrirtæki, hlutbréf og annan loftkenndan varning (jafnvel erlendis) þá verður (vonandi) til eitthvert smáræði, brauðmolarnir sem eru grundvöllur þessarar kenningar.
Brauðmolarnir, sem falla af borðum alsnægtanna, eru síðan það sem er til skiptanna þ.e. kaupgjaldið þeirra sem vinna verkin. Vandinn er hins vegar sá að brauðmolarnir eru afar fáir, ef nokkrir, þegar upp er staðið enda grundvöllur þessarar stefnu það sem að í daglegu tali er kallið hin grjótharða íslenska láglaunapólitík. Allt rask á þessu fyrirkomulagi nema ef vera skyldi í þá veru að fækka brauðmolum veldur stórfeldri vá, að sögn almennt en með réttu hvað varðar ítrustu sérhagsmuni umbjóðenda SA
Málflutningur fulltrúa á næstu misserum mun bera keim af þessu. Grein framkvæmdastjóra SA í Fréttablaðinu 24. ágúst 2013 „Verðbólgan ræðst af niðurstöðum kjarasamninga“ er klassískt dæmi um Brauðmolaretorik. Þar eru forsendur um einhverja smáræðis hækkun á launum í spám Hagstofu og Seðlabankans taldar kom öllu í vitleysu. Framkvæmdastjórinn tekur síðan dæmi um hófsamar hækkanir í nágrannalöndum okkar sem séu til fyrirmyndar, án þess þó að geta í nokkru eða gera tillögur um sambærilegt kaupgjald og þar ríkir. Sú hófsemd sem SA boðar almennt gildir auk þess eingöngu fyrir aðra en þá eins og sjá má varðandi hækkun kaupgjalds og þróun þess hjá æðstu stjórnendum fyrirtækja.
Íslenskir kjarasamningar eru, sennilega einir kjarasamninga (í hinum vestræna heimi), því marki brenndir að vera markaðir af kerfis- og lögbundnu óréttlæti. Kaupgjald sem ekki er vísitölubundið í vísitölubundnu þjóðfélagi er rót mikils vanda og gerir það að verkum að kjarasaming eftir kjarasamning velta aðilar SA/SI/SVÞ og fleiri samtök öllum kaupgjaldshækkunum beint út í verðlagið, án nokkurs eftirmála, sem væri ekki hægt ef kaupgjaldið lyti sömu reglum og annað í íslensku hagkerfi.
Að mati SA er aldrei ráðrúm til hærra kaupgjalds, ekki einu sinni á þeim tímum er efnahagur hefur verið í blóma. Íslenskir kjarasamningar hafa því miður ekki snúist um réttláta og sanngjarna skiptingu tekna samfélagsins – um það hefur fjarri því verið sátt, íslensk kjarabarátta hefur einkennst af samfeldum átökum og vantrausti gagnvart vinnuveitendum vegna langvarandi óbilgirni . Telur SA að hin grjótharða íslenska láglaunapólitík, þetta félagslega böl, sé líkleg til þess að koma íslensku efnahagslífi í gang?
Brauðmolahagfræði a la SA er einungis ávísun á áframhaldandi og síaukin ójöfnuð í íslensku samfélagi. Verkefni næstu kjarasamninga snúast ekki um slíkt . Þau snúast um sanngjörn skipti, og sanngjarna hlutdeild. Slíkt eru öllum til góða ekki síst umbjóðundum SA.
miðvikudagur, 31. júlí 2013
mánudagur, 17. júní 2013
Daðrað við þjóðernishyggju
Ég er satt best að segja nokkuð uggandi yfir þeim
leiktjöldum sem umlykja núverandi ríkisstjórn. Og þá er ég ekki að tala um hið hefðbundna pólitíska krap. Það er umgjörðin, sérstaklega sú ríka þjóðernishyggja sem sviðið er skreytt með. Táknrænir fundir
í stjórnamyndunarviðræðum á Þingvöllum,
kynning stjórnarsáttmálans í Héraðsskólanum á Laugarvatni, innblásinn ræða
forsætisráðherra á 17. júní o.fl. í
þessum dúr. Allt á þetta sér stoð í stjórnarsáttamála ríkisstjórnarinnar en þar
segir segir:
„Íslensk þjóðmenning verður í hávegum höfð, að henni hlúð og
hún efld. Áhersla verður lögð á málvernd, vernd sögulegra minja og skráningu
Íslandssögunnar, auk rannsókna og fræðslu. Ríkisstjórnin mun vinna að því að
auka virðingu fyrir merkri sögu landsins, menningu þess og tungumálinu, innanlands
sem utan.“
Og til þessa að tryggja að svo verði þá er nánast allt sem lýtur að „þjóðmenningu“ fært
undir forræði forsætisráðherra sem verður einhverskonar
þjóðmenningarmálaráðherra.
Vinur minn og kollegi við Háskólann í Malmö sem hefur látið sig
þessi mál varða og segir einfaldlega að allar þjóðir eigi sér „sitt ómeti“ eins
og hákarl, sinn „þorramat“, sitt brennivín, allar þjóðir eiga sína fallegu
staði, sögu og tónlist. Og hann hefur
spurt, hvað gerir eitt land eitthvað sérstaklega merkilegri en annað? Og svarað er ekkert.
Að efla þjóðerniskennd fram úr hófi er leið til þess að efla
veika eða laskaða þjóðarsál, slíkt var því einkennandi í sjálfstæðisbaráttu margra þjóða,
ekki síst okkar eigin eins og við þekkjum gjörla. Slíkt var skiljanlegt í einu
fátækasta bændasamfélagi Evrópu þar sem fólk lifði í samfelldri vosbúð, fátækt
og hokri. Sögur íslenska aðalsins, Íslendingasögurnar, voru settar í samhengi
ofurmennsku og síðar meir, að undirlagi Jónasar frá Hriflu, í sögukennslubækurnar
svo að æska landsins gæti samsamað sig með fyrirmyndum og við tilveru fólks, sem þrátt fyrir allt hefur aldrei verið í boði
fyrir íslenskt alþýðufólk, hvorki þá né nú.
Nú veltir maður fyrir sér hvort eitthvert sérstakt tilefni sé til þess að endurvekja gamaldags
þjóðernishyggju, nema þá helst í „afmörkuðum“ pólitískum tilgangi? Ég gef mér
að slíkt sé raunin því aðrar ástæður eru
óbærilegar. Hinn „afmarkaði“pólitíski tilgangur því einfaldlega sá að setja
íslenska þjóðmenningu í samhengi hins sérstæða og einstæða og sem slík þá hafi Íslendingar
lítið sem ekkert að sækja út fyrir landssteinanna (nema í hlutverki
einhverskonar útrásarvíkinga) og hvað þá til Evrópu. Evrópusambandið er hinn stóri óvinur,
ógnvaldur, hin ytri vá, sem hefur eftir miklu að slægast hérlendis, ekki síst hinu afar
dýrmæta sjálfstæði íslensku þjóðarinnar, a.m.k. að sögn ýmissa þeirra sem nú blása upp
einhvern þjóðernisrembing. Það er fátt sem sameinar betur í slíkri baráttu og
„góður“ óvinur. Hið vonda ESB og vondu útlöndin (svo ekki sé minnst á Alþjóða gjaldeyrissjóðinn) sem stilltu okkur upp við vegg og gerðu við okkur vonda samninga vegna útrásarvíkinga sem hinn almenni Íslendingur ber enga ábyrgð á. Þetta spilverk allt saman getur því
miður orðið jarðvegur hins algera illgresis og leitt okkur í hinar mestu
ógöngur, eins og sagan ætti að hafa kennt okkur.
Vandinn er hins vegar sá að þjóðernisumræða einskorðast ekki
við eitt afmarkað mál. Hin hliðin á
þessum miklu þjóðernisáherslum er nefnilega grafalvarlegur og fellst í þeim
skilboðum sem berast þeim fjölmörgu Íslendingum sem ekki geta rakið ættir
sínar mann fram af manni hérlendis og eru einfaldlega, í allra stystu útgáfu, þessi: Þið eruð ekki hluti af
þjóðinni. Skilaboð sem eru
algerlega ósæmandi í því fjölmenningarsamfélagi sem við lifum í og þrífst með ágætum í hinum vestræna heimi.
Að ætla sér að byggja einhverja pólitíska þrætubókarlist á
íslenskum þjóðrembing og drambi er algert glapræði. Einstakt íslenskt atgervi og sérstök
viðskiptagreind á heimsvísu var að sögn útrásarvíkinga forsenda farsældar í
viðskiptum …eða hitt þó heldur! Á því
eigum við að læra, fremur en að endurtaka.
Pólitík og rík þjóðernishyggja er baneitruð blanda og ekki til annars
falin en að auka sundurlyndi þeirra sem þetta land byggja. Daður við þjóðernishyggju kann ekki góðri lukka að stýra, ég hvet stjórnvöld eindregið til að ganga hægt inn um gleðinnar dyr í þessum efnum
mánudagur, 1. apríl 2013
Verð á fisinu í sumar - ódýrar ferðir um Hekluslóðir
Ég er því búin að ákveða að bjóða fólki upp á útsýnisflug um Hekluslóðir í sumar á góðviðrisdögum en Fisið er staðsett í Landsveitinni. Ég má náttúrulega ekki taka gjald fyrir en að loknu flugi gefst farþegum kostur á kaffihlaðborði í Neðri Snjalla fyrir sanngjarnt verð. Áhugasömum er bent á að hafa samband við mig í rafpóstfangið arni.gudmunds@simnet.is
þriðjudagur, 12. febrúar 2013
Hin grjótharða íslenska láglaunapólitík er félagslegt böl
Mestu öfugmæli sveitarfélaga og annara vinnuveitanda í kjaramálum (
s.l. 40 - 50 ár amk) er frasinn um að allt fari til andskotans í
efnahagsmálum hérlendis ef laun hækki. Þangað er allt farið og enn hanga
viðsemjendur launafólks á grjótharðri láglaunapólitík eins og hundar á
roði, við erum ennþá í þessum láglaunpytti.
Ef litið er til sögunnar þá hefur aldrei verið ráðrúm til launahækkana, hvorki í góðærum eða á samdráttarskeiðum. Rök vinnuveitenda hafa hverju sinni verið gaumgæfilega útfærð og ekkert endilega í samhengi við þau rök sem áður voru viðhöfð eða þau sem eftir á komu. Í góðærum ógna launahækkanir "stöðugleika" og á samdráttarskeiðum "þarf" að leggja niður og draga saman grunnþjónustu ef laun fara yfir fátækrarmörk. Allt rök sem vega að öryggistilfinningu fólks og ala á ótta þess. Svona mætti lengi telja og þegar að mest á mæðir taka talsmenn vinnuveitenda þetta á "tárakirtlunum" enda eftir nokkru að slægjast, stöðug láglaunapólitík í húfi .
Það sem verra er að margur trúir því að hin grjótharða íslenska láglaunapólitík sé orsök alls okkar vanda. Þokkalegt sjónvarpstæki og notaður 7 ára gamal fjölskyldubíll er talin orsök hrunsins mikla. Og það að eiga eða hafa þokkalega umgjörð um sig og sína þykir lúxus hérlendis en meðal flestra þjóða talið til grunnþarfa. Íslensk láglaunapólitík er félagslegt böl og varð m.a. til þess að hrunið kom verr niður á okkur en ella.
Sænska dagblaðið Dagens Nyheter, sem seint verður talið málsvari félagshyggjunnar, birti, í kjölfar hrunsins hérlendis, grein í þessa veru. Í greininni var því haldið fram að vegna lágra launa í hinu íslenska samfélagi "allsnægtanna" hefðu íslendingar fjármagnað neyslu sína með lánum fremur en sparnaði af launum eins og ku vera alsiða í nágrannalöndum okkar þar sem ríkari sátt er um skiptingu auðsins en hérlendis. Í stað sanngjarnar tekjuskiptingar í efnuðu íslensku samfélagi hefði fjármagn safnast á nánast einn stað, í bankakerfið sem síðan lánaði á okur vöxtum öllu sem hreyfðist (m.a ómálga börnum - innskot ÁG) og ekki síst fólki sem ekki hafði laun til að greiða af viðkomandi lánum. Sanngjörn laun vinni einfaldlega á móti svona þróun og skapi ákveðið jafnvægi ritaði sérfræðingur DN. Hefði óneitanlega hefði verið mikil kostur í íslensku efnahagslífi síðustu áratugi Hin grjótharða íslenska láglaunapólitík er félaglegt böl . Afleiðingarnar hræðilegar eins og almennt launafólk hefur fengið að reyna og ekki síst í kjölfar hrunsins. Og lítið miðar okkur áfram, eða réttar sagt upp á við, og erum vart hálfdrættingar miðað við önnur Norðurlönd og þó víðar væri leitað. Á þessu sviði íslenskra efnahagsmála er vissulega mikið rými til framfara.
Ef litið er til sögunnar þá hefur aldrei verið ráðrúm til launahækkana, hvorki í góðærum eða á samdráttarskeiðum. Rök vinnuveitenda hafa hverju sinni verið gaumgæfilega útfærð og ekkert endilega í samhengi við þau rök sem áður voru viðhöfð eða þau sem eftir á komu. Í góðærum ógna launahækkanir "stöðugleika" og á samdráttarskeiðum "þarf" að leggja niður og draga saman grunnþjónustu ef laun fara yfir fátækrarmörk. Allt rök sem vega að öryggistilfinningu fólks og ala á ótta þess. Svona mætti lengi telja og þegar að mest á mæðir taka talsmenn vinnuveitenda þetta á "tárakirtlunum" enda eftir nokkru að slægjast, stöðug láglaunapólitík í húfi .
Það sem verra er að margur trúir því að hin grjótharða íslenska láglaunapólitík sé orsök alls okkar vanda. Þokkalegt sjónvarpstæki og notaður 7 ára gamal fjölskyldubíll er talin orsök hrunsins mikla. Og það að eiga eða hafa þokkalega umgjörð um sig og sína þykir lúxus hérlendis en meðal flestra þjóða talið til grunnþarfa. Íslensk láglaunapólitík er félagslegt böl og varð m.a. til þess að hrunið kom verr niður á okkur en ella.
Sænska dagblaðið Dagens Nyheter, sem seint verður talið málsvari félagshyggjunnar, birti, í kjölfar hrunsins hérlendis, grein í þessa veru. Í greininni var því haldið fram að vegna lágra launa í hinu íslenska samfélagi "allsnægtanna" hefðu íslendingar fjármagnað neyslu sína með lánum fremur en sparnaði af launum eins og ku vera alsiða í nágrannalöndum okkar þar sem ríkari sátt er um skiptingu auðsins en hérlendis. Í stað sanngjarnar tekjuskiptingar í efnuðu íslensku samfélagi hefði fjármagn safnast á nánast einn stað, í bankakerfið sem síðan lánaði á okur vöxtum öllu sem hreyfðist (m.a ómálga börnum - innskot ÁG) og ekki síst fólki sem ekki hafði laun til að greiða af viðkomandi lánum. Sanngjörn laun vinni einfaldlega á móti svona þróun og skapi ákveðið jafnvægi ritaði sérfræðingur DN. Hefði óneitanlega hefði verið mikil kostur í íslensku efnahagslífi síðustu áratugi Hin grjótharða íslenska láglaunapólitík er félaglegt böl . Afleiðingarnar hræðilegar eins og almennt launafólk hefur fengið að reyna og ekki síst í kjölfar hrunsins. Og lítið miðar okkur áfram, eða réttar sagt upp á við, og erum vart hálfdrættingar miðað við önnur Norðurlönd og þó víðar væri leitað. Á þessu sviði íslenskra efnahagsmála er vissulega mikið rými til framfara.
mánudagur, 7. janúar 2013
Segir fátt af einum - að minnsta kosti í eigin miðli
Man þetta ekki alveg enda ekki menntaður fjölmiðlafræðingur en fræðimaðurinn McQuil (Mass Communication m.m.) nefnir einhverjar birtingarmyndir um samspil fjölmiðlunar og eignarhalds á þeim. Ein birtingarmyndin var um fjölmiðlasamsteypur í eigu “bísnessmanna“, tycoons og eða moguls minnir mig að þetta hafa verið nefnt. Viðkomandi nota miðilinn / miðlana í þágu persónulegra hagsmuna og hafa með beinum hætti (og jafnvel óbeinum hætti) áhrif á ritstjórnarstefnuna. Skólabókardæmi um slíkt má sjá á bls 2 í Fréttablaðinu í dag. Sjón er sögu ríkari
þriðjudagur, 1. janúar 2013
Ekki mikil retorik hjá Ólafi
Hlýddi á nýársávarp Ólafs Ragnars og þótti ekki mikið til þess koma. Algjörlega hefðbundin ræða stjórnmálamanns af gamla skólanum . Einföld málfundaæfing eins og það að tengja alvarlega stöðu í umhverfismálum, andvaraleysi í þeim málum og líkja því við breytingar á stjórnarskrá er retorik sem þessu embætti er ekki samboðin. Er samasem merki milli þeirra sem vilja breytingar á stjórnarskrá og þeim sem sýna ábyrgðarleysi í umhverfismálum? Það vantaði ekkert inn í þessa fléttu nema kanski að koma Evrópu umræðunni inní þetta undarlega mengi sem kallaðist nýársávarp forseta Íslands. Eftir einarða og einsleita umræðu um hvílíkt glapræði felist í stjórnlagaþingsbreytingum var ávarpið kórónað með að hvetja til "samstöðu". Ekki var þetta sérstaklega landsföðurlegt ávarp - Að mínu mati var hápunktur ávarpsins sá þegar að Ólafur leggur til að hlúa þurfi sem best að æsku landins og um það geta allir verið sammála - annað var hefðbundið pólitískt karp.
föstudagur, 23. nóvember 2012
Núna drekkur James Bond bara kók zero
Undanfarið hefur njósnari hennar hátignar James Bond, eða 007 eins og hann er auðkenndur í starfsmannaskrá MI6, birst okkur í tíma og ótíma, meðal annars í sjónvarpi allra landsmanna RÚV. Fyrir utan það að vera í miklum önnum þá er aðal mission-in í auglýsingu um nýjustu mynd kappans „Skyfall“ að ná sér í áfengi, bjórtegund eina sem ku vera „léttöl“ eins og alsiða er að auglýsa af hálfu framleiðenda og innflytjenda áfengis. Kvöld eftir kvöld sýnir, eða réttara sagt sýndi, RÚV þessa áfengisauglýsingu á prime time.
Siv Friðleifsdóttir, okkar ágæta þingkona, er ein þeirra fjölmörgu sem ekki var sátt við þessa illa dulbúnu áfengisauglýsingu. Hún gerir sér lítið fyrir, hringir í helstu verslanir landsins og spyr um „léttölið“ og fær þau svör úr öllum áttum að það sé ekki til, hafi aldrei fengist og sé sennilega ekki einu sinni framleitt?
Núna drekkur Bond bara kók og það zero í tíma og ótíma. "léttölið" ófáanlega með öllu horfið úr auglýsingunni og þess í stað sýnir 007 nú afar einbeitta ásókn í kók zero. Það reynist honum örugglega betur í mikilvægum störfum sínum en áfengið. Hvort þetta sé þingmanninum ágæta að þakka eða „kenna“ skal ósagt látið. Þetta einstaka kapp áfengisinnflytandans við að auglýsa vöru sem ekki er til, er utan þeirrar almennu greindarfarskröfu sem að öllu jöfnu er gerð til forsvarsmanna fyrirtækja og sem slíkt umhugsunarvert í meira lagi.
Eftir situr spurningin hvers vega er ekki gefin út ákæra á þá fjölmiðla sem brjóta lög er varða sjálfsögð réttindi barna og ungmenna til að vera laus við áfengisáróður sbr. þessi áfengisauglýsing? Er nóg fyrir RÚV og aðra fjölmiðla að segja sorry og halda síðan áfram eins og ekkert hafi í skorist. Er lögregluyfirvöldum lífsins ómögulegt að standa vörð um augljós réttindi ungmenna – Maður spyr sig ...aftur og aftur?
föstudagur, 26. október 2012
Hin grjótharða hafnfirska láglaunapólitík
Var fundarstjóri á almennum félagsfundi STH (Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar) í gær 25/11 . Rennur blóðið til skyldunnar og er bæði ljúft og skylt að taka að mér eitt og annað viðvikið fyrir STH ef því er að skipta. Var lengi formaður þessa ágæta félags sem státar af langri og merkilegri sögu. Efni fundarins var tvíþætt annars vegar kynntu fulltrúar frá Capacent kjarakönnun BSRB og sérstaklega hlut STH í samhengi við önnur BSRB félög og svo hitt að ræða s.k. launleiðréttingar bæjaryfirvalda sem miklar efasemdir eru um að hafi verið framkvæmdar með skilmerkilegum hætti.
Það þarf ekki að hafa mörg orð um að niðurstöður launkönnunar BSRB er stórfelldur áfellisdómur um starfsmannastefnu bæjarins, nánast hvar sem litið er. Laun STH félaga eru rúmlega 10% lægri en meðaltalslaun BSRB félaga hvort sem litið er til dagvinnu- eða heildarlauna. Samkvæmt könnun Capacent þá hafa 33,2 % prósent BSRB félaga fengið launaleiðréttingu en einungis 7,2% félagsmanna STH. 40% félagsmanna STH eru mjög ósáttir við laun sín á sama tíma og 27% BSRB félaga eru það. (Heimild Capcent)
Það voru fjörugur umræður og fyrirspurnir að loknum framsöguerindum. Margt bar á góma m.a. launafyrirkomulag.
Í einu orðinu er sagt að óunnin föst yfirvinna sé aðferð til þess að jafna bil milli ólíkrar launakerfa (BSRB /BHM) og þar með viðurkennt að starfsmatið virki ekki ( sem eru engin ný sannindi ). Í öðru orðinu er svo sagt að ekki sé til neitt sem heiti óunnin yfirvinna og þar með staðfest að t.d. háskólamenn innan STH njóti verulega lakari kjara en kollegar þeirra í öðrum stéttarfélögum, sem er brot á öllu sem heitir jafnræði og ákvæðum um sömu laun fyrir sömu vinnu. Þegar að við þetta bætist að Hafnarfjörður eitt bæjarfélaga átti í stórfeldum erfiðleikum við að uppfylla bókun 7 í kjarasamningum (um að dagvinnulaun taki mið af launakjörum viðkomandi stéttarfélags þ.e. lág grunnlaun + yfirvinna STH verður sama og grunnlaun og engin yfirvinna BHM ) var mörgum hópum ekki vært innan félagsins, þó svo að viðkomandi myndu helst óska þess að vera þar. Með þessu hafa bæjaryfirvöld og eða fulltrúar þess tekið að sér að skipa launafólki í félög og sennilega í þeim tilgangi að veikja eitt sterkast aflið í kjarabaráttu starfsmanna bæjarfélagsins STH
Hin grjótharða láglaunapólitík Hafnarfjarðarbæjar kemur fullkomlega í ljós í þessari Capacent könnun sem og starfsmannastefnan í svörum þeirra er sinna starfmannamálum. Augljóst er að átakasækni og óbilgirni þeirra sem með þessi mál fara fyrir hönd bæjarfélagsins síðustu ár ef ekki áratugi , sem og pólitískt GO, hefur komið starfsmannastefnu Hafnarfjarðarbæjar í óefni, í stefnu hinna lægstu viðmiða. Þetta er algerlega afleitt ekki í síst í ljósi þess að meirihluti bæjarstjórnar kennir sig að öllu jöfnu við félagshyggju.
Ég get ekki annað en sem fyrrverandi formaður STH skorað á bæjaryfirvöld að endurskoða starfsmannstefnu sína frá A –Ö. Hafnarfjarðarbær státar af góðu starfsfólki og okkar ágæta bæjarfélag hefur ekki efni að öðru en að breyta algerlega um kúrs í þessum efnum. Niðurstöður Capacent er áfellisdómur, niðurstöður sem er algerlega nauðsynlegt að bregðast við og gefa tilefni til gagngerra endurbóta – það er sannarlega rými til framfara á þessu sviði.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)









