Mestu öfugmæli sveitarfélaga og annara vinnuveitanda í kjaramálum (
s.l. 40 - 50 ár amk) er frasinn um að allt fari til andskotans í
efnahagsmálum hérlendis ef laun hækki. Þangað er allt farið og enn hanga
viðsemjendur launafólks á grjótharðri láglaunapólitík eins og hundar á
roði, við erum ennþá í þessum láglaunpytti.
Ef litið er til sögunnar þá hefur aldrei verið ráðrúm til launahækkana,
hvorki í góðærum eða á samdráttarskeiðum. Rök vinnuveitenda hafa hverju
sinni verið gaumgæfilega útfærð og ekkert endilega í samhengi við þau rök
sem áður voru viðhöfð eða þau sem eftir á komu. Í góðærum ógna launahækkanir
"stöðugleika" og á samdráttarskeiðum "þarf" að leggja niður og draga
saman grunnþjónustu ef laun fara yfir fátækrarmörk. Allt rök sem vega að
öryggistilfinningu fólks og ala á ótta þess. Svona mætti lengi telja og
þegar að mest á mæðir taka talsmenn vinnuveitenda þetta á
"tárakirtlunum" enda eftir nokkru að slægjast, stöðug láglaunapólitík í
húfi .
Það sem verra er að margur trúir því að hin grjótharða íslenska
láglaunapólitík sé orsök alls okkar vanda. Þokkalegt sjónvarpstæki og
notaður 7 ára gamal fjölskyldubíll er talin orsök hrunsins mikla. Og það
að eiga eða hafa þokkalega umgjörð um sig og sína þykir lúxus hérlendis
en meðal flestra þjóða talið til grunnþarfa. Íslensk láglaunapólitík er
félagslegt böl og varð m.a. til þess að hrunið kom verr niður á okkur
en ella.
Sænska dagblaðið Dagens Nyheter, sem seint verður talið málsvari
félagshyggjunnar, birti, í kjölfar hrunsins hérlendis, grein í
þessa veru. Í greininni var því haldið fram að vegna lágra launa í hinu
íslenska samfélagi "allsnægtanna" hefðu íslendingar fjármagnað neyslu
sína með lánum fremur en sparnaði af launum eins og ku vera alsiða í
nágrannalöndum okkar þar sem ríkari sátt er um skiptingu auðsins en
hérlendis. Í stað sanngjarnar tekjuskiptingar í efnuðu íslensku
samfélagi hefði fjármagn safnast á nánast einn stað, í bankakerfið sem
síðan lánaði á okur
vöxtum öllu sem hreyfðist (m.a ómálga börnum - innskot ÁG) og ekki síst fólki sem ekki hafði laun til að greiða af viðkomandi lánum. Sanngjörn laun vinni einfaldlega á móti svona þróun og skapi ákveðið jafnvægi ritaði sérfræðingur DN. Hefði óneitanlega hefði verið mikil kostur í íslensku efnahagslífi síðustu áratugi Hin grjótharða íslenska láglaunapólitík er félaglegt böl . Afleiðingarnar hræðilegar eins og almennt launafólk hefur
fengið að reyna og ekki síst í kjölfar hrunsins. Og lítið miðar okkur áfram, eða réttar sagt upp á við, og erum vart hálfdrættingar miðað við önnur Norðurlönd og þó víðar væri leitað. Á þessu sviði íslenskra efnahagsmála er vissulega mikið rými til framfara.
Heyr heyr.
SvaraEyða