sunnudagur, 15. janúar 2012
þriðjudagur, 3. janúar 2012
Er orðin anti sportisti
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi – hugrenningar félaga míns Guðmundar Sæmundssonar um málfar í íþróttum hafa gerbreytt afstöðu minni til íþrótta í grundvallaratriðum. Ég er eiginlega orðin anti sportisti en er þó virkur þátttakandi í þessum fáfengileika eins skrýtið og það kann að hljóma – held að þetta sé fíkn fremur en einhver skynsemi eins og margur heldur fram. Líkami minn má muna sinn fífil fegurri enda stundum haltur og skakkur og jafnvel hvorutveggja í senn eftir íþróttaiðkun síðustu áratugina – þetta getur ekki verið hollt.
Ég stunda þessa undarlegu iðju að lemja kúlu fram og aftur um græna haga yfir hábjargræðistímann, um okkar bestu lendur, sem að öllu jöfnu væri mun skynsamlegra að nýta undir hefðbundin landbúnað. Svo ekki sé nú minnst á þá áráttu mína að dvelja langdvölum í s.k. íþróttahúsum. Þau eru yfirfull af fullfrísku fólki sem eyðir dýrmætri orku sinni og tíma í hreina vitleysu sem felst í því að lemja fiðraðar kúlur eða bolta af ýmsu tagi yfir, undir eða í net og það ýmist með höndum, fótum og eða öðrum útlimum með eða án tiltekinna áhalda oftast dýrum, verandi í einhverjum ómerkilegum nylonfatnaði sem seldur er eins og hvert annað silki?Látum það vera að mannlegir breyskleikar eins og almennt ístöðuleysi og áhættufíkn valdi því að einhverjir stundi svokallaðar íþróttir, iðjan sem slík er með öllu óþörf. Við getum reyndar gefið okkur það íþróttunum til varnar að samfélagið þurfi hverju sinni að hafa á að skipa vaskri sveit manna og kvenna og þjálfi það markvisst í þeim eina og göfuga tilgangi að verjast utanaðkomandi vá.
Það eru engin ný sannindi þetta vissu Grikkir til forna og um þessa samfélagsleg ábyrgð var köppum eins og Gunnar á Hlíðarenda, Agli Skallagrímssyni og fleirum fullkunnugt um. Gunnar, sem á enn þann dag í dag óstaðfest heimsmet í hástökki með og án atrennu, gerði aldrei kröfur til þess að fá afrek sín íþróttafræðilega staðfest og nýtti þessa hæfileika sína aldrei í öðrum tilgangi en hernaðarlegum. Egill Skallgrímsson sem var okkar harðasti ísknattleiksmaður fyrr og síðar sýndi með "góðu" fordæmi að það er öldungis rétt að áfengi og neysla þess er verulegur hluti leiksins eins núna nokkur hundruð árum seinna er auglýst í gríð og erg ungu íþróttafólki til eftirbreytni.
Að hoppa yfir á eða torfæru á stöng er praktískt. Að kasta spjóti eða kúlu og reyndar bara öllu lauslegu í styrjöldum er praktískt svo ekki sé minnst á almennar barsmíðar eins og box og glímur af öllum hugsanlegum og óhugsanlegum tegundum og svo ég nefni nú gríðarlegt gildi skylminga og skotfimi í þessum tilgangi. En að leggja stund á slíkt á friðartímum er algerlega tilgangslaust og ætti af þeim sökum að fá til þessara fánýtilegu verka tiltekið hlutfall æskufólks hverju sinni með þeim íþyngjandi kvöðum að það leggi stund íþróttir í samfélagslegu varnarskyni. Í þokkalega siðuðum samfélögum er þetta kallað herskylda, er reyndar víða afnumin þar sem fólk fæst orðið í þessa vitleysu af fúsum og frjálsum vilja, eins undarlega og það kann að hljóma.
Segjum sem svo að hægt sé að forsvara allt það fé sem fer til íþrótta sem einhverskonar hernaðarútgjöld. Ef svo er þá er einni grundvallarspurningu algerlega ósvarað. Hún snýst ekki um hvort vinur minn Óli Jó átti að halda áfram að láta einhvern tiltekin hóp ungmenna hlaupa á eftir bolta og sparka eða hvort væri betra að fá einhvern annan til verksins. Eða hvort einhver miðaldra karlmaður leiki með í einhverri handboltakastkeppni eða ekki? Þetta hefur akkúrat ekkert að segja og enga þýðingu hvað varðar varnir landsins og styrk okkar gagnvart utanaðkomandi vá.
Grundvallarspurningin er því auðvitað sú hvar var íþróttahreyfingin þegar að Icesave málið dundi á þjóðinni með miklu offorsi ? Svarið er einfalt hún var, eins og hún lagði sig, í fullkomnu tilgangsleysi, inni í íþróttahúsunum við að reyna að hoppa hærra,hraðar, lengra, hlaupa eins og fætur toga, kasta ýmsum hlutum í allar áttir, sparka og allt hvað menn nú annars aðhafast í þessum fínu húsum. Einungis nokkrir tugir íslendinga mættu til leiks ... eða réttara sagt á stríðsvettvang, aðallega miðaldra karlmenn sem mæddust mjög eftir langa göngu um borg óvinarins, London þjakaðir af bráðu brjóstkassasigi með kynningarbæklinga og undirskriftalista að vopni. Eins að það virki eitthvað. Þeir áttu við ofurjarla sína að etja eins og kunnugt er af annálum þar um .Varð hin mesta sneypuför enda íþróttahreyfingin fjarri eins og svo oft áður þegar að virkilega á reynir.
Þarna fór gott (tæki)færi forgörðum, það er næsta víst, þarna skall hurð nærri hælum, hefði hreyfingin þurft að bíta í skjaldarrendurnar, hún hefði verið betri en engin, hún fer sér að engu óðslega en verður að taka á honum stóra sínum eins og Bjarni Fel hefði orðað þetta. Tilefni þessara hugleiðinga minna er eins og áður sagði hugleiðingar vinar míns Guðmundar Sæmundsonar í formi doktorsritgerðar sem nefnist „Það er næsta víst“ og fjallar um málfar í íþróttum. Það er mikil efniviður og ritgerð sem verður fróðlegt að lesa. Hugleiðingar mínar um „gildi“ íþrótta almennt ekki beint úr þeim ranni en þó skyldar . Mun þó, aðspurður, stefna að því að gera mitt besta, leggja mig allan fram, freista þess að lækka forgjöfina og leika til sigurs á móti erfiðum andstæðingum, þó á móti blási.
laugardagur, 31. desember 2011
miðvikudagur, 30. nóvember 2011
Þetta vekur mig til umhugsunar !
Það vakti athygli fyrir nokkru þegar að ógæfumaður var dæmdur til
fangelsisvistar eftir að hann varð uppvís að því að stela nokkrum bjórum
í ríkinu. Að vísu átti hann einhver önnur afbrot af svipuðum toga
óuppgerð en var eðli málsins settur í steininn. Lögbrot er lögbrot og
umfangið sem slíkt skiptir ekki máli – eða hvað? Lögbrot sem slíkt er
nákvæmlega sama hvort það er stórt eða lítið. Í siðuðu samfélagi skiptir
ekki máli hvort menn stela einu súkkulaðistykki eða 100 allt eru þetta
glæpir.
Þetta vekur mig til umhugsunar um ákveðið misræmi hvað varðar önnur lögbrot t..d. eins og brot á 20. gr áfengislaga um bann við áfengisauglýsingum. Í þeim efnum hafa “vettlingatök” verið viðhöfð. Þó að dómum fjölgi þá er það umhugsunarvert í Hæstaréttardómi þar sem ritstjóri Mannlífs var dæmdur til sektar þá skilar einn dómari séráliti þess efnis að þar sem brot séu svo mörg að hinn seki ætti ekki gjalda þess að vera einn kærður. Jafnræði fælist í því að þessi eini ætti að sleppa? í stað þess þá væntanlega að vinda sér í kæra þá sem lögbrot hafa framið. Þess má geta að ritstjórinn sakfelldi lagði fram sér til “málsbóta” fjórar möppur er innihéldu 999 áfengisauglýsingar sem ekki hefðu verið kærðar?
Þetta vekur mig til umhugsunar um hve gríðarlegt virðingarleysi viðkomandi aðilar sýna lögum landsins. Áfengisframleiðendum og innflytjendum áfengis flestum hverjum virðist vera algerlega sama um lög landsins sniðganga þau, brjóta og sýna af sér markvissan og einlægan brotavilja. Dómar þ.e.a.s. fyrir utan það að einn og annar forstjórinn eða ritstjóri lendir á sakaskrá, eru svo vægir að greiðsla sektar er aðeins brotabrot af auglýsingakostnaði og dómar miðað við fjölda brota eru allt of fáir.
Þetta vekur mig til umhugsunar um 20. grein áfengislaga sem fyrst og fremst er sett fram sem liður í vernd barna og ungmenna. Það er skynsamlegt enda áfengi engin venjuleg “matavara” . Íslendingar drekka ekki rauðvín með kjötbollunum á miðvikudögum eins og er óskhyggja einhverra þingmanna sem vilja leyfa sölu á áfengi í stórmörkuðum, en eins og kunnugt er þá er verulegur fjöldi starfsmanna unglingar og í einhverjum tilfellum allt niður í 12 ára börn! Áfengi er viðkvæm vara eins og t.d. lyf og tóbak og lýtur því að sjálfsögðu öðrum lögmálum en vörur almennt. Börn og unglingar eiga því lagalega og ótvíræðan rétt á því að vera laus við þennan einhliða áróður sem áfengisauglýsingar eru. Bann við áfengisauglýsingum er ekki skerðing á tjáningarfrelsi eins einhverjir brennivínsbransans menn hafa haldið fram. Samkvæmt skýrum niðurstöðum Hæstaréttar um það atriði þá er um keyptan einhliða áróður að ræða sem ekkert á skylt við tjáningarfrelsi. Hitt er svo annað mál að það er teljandi á fingrum annarar handar þau tilefni sem fulltrúar áfengisbransans hafa tekið þátt í almennum tjáskiptum – t.d. í fjölmiðlum eða öðum opinberum vettvangi. Því þora menn ekki og kjósa að höndla í samræmi við eigin skoðanir um “tjáningarfrelsi” þ.e. með fleiri áfengisauglýsingum.
Þetta vekur mig til umhugsunar um hve lágt menn leggjast í þessum málum. Ég sagði eitt sinn á fræðslufundi í ónefndu foreldrafélagi að það væru engin mörk og nefndi það að sennilega myndu menn auglýsa bjór á fæðingardeildinni ef menn kæmust upp með það. Var þá að ýja að því hvernig áfengisbransinn beinir auglýsingum markvisst að börnum og unglingum. Fékk skömm í hattinn fyrir þessi ummæli en viti menn ekki löngu síðar barst mér myndband þar sem hinir dönsku “Gunni og Felix” léku í bjórauglýsingu. Nær fæðingardeildinni verður vart komist.
Þetta vekur mig til umhugsunar um þá lágkúru þegar að settar voru áfengisauglýsingar inn á bloggsíður barna; eða þegar að Ölgerð Egils Skallagrímssonar lét koma fyrir áfengisauglýsingum í strætóskýlum á stór Reykjavíkursvæðinu í aðdraganda grunnskólaprófa og að stjórn Strætó b.s. skyldi sýna sínum helstu kúnnum, börnum og unglingum slíka vanvirðu; eða þegar að íþróttafélag gerir fullann Lunda með bjór í hönd að einkennismerki útihátíðar; eða þegar RÚV birti áfengisauglýsingum í kjölfar þess að forseti Íslands veitti íslensku forvarnarverðlaunin og eins í kjölfar þess þegar að liðsmönnum íslenska handknattleikslandsliðsins voru veittar orður; eða þegar börn eru notuð í áfengisauglýsingar eins og fyrirtækið Vífilfell gerir; eða þegar að útvarpstöðvar sem ætlaðar eru börnum og unglingum útvarpa áfengisauglýsingum; eða þegar að auglýst að ekki sé hægt að horfa á enska boltann nema verða ölvaður; eða þegar að áfengisbransinn segist vera hluti af íþróttaleikum; eða þegar ungt fólk eignast ekki vini fyrr en það hefur drukkið 12 bjóra.? Svona mætti lengi telja og ljóst að virðing fyrir réttindum barna og unglinga er engin.
Þetta vekur mig til umhugsunar um það að áfengisauglýsingar virka. Hagsmunaaðilar hafa haldið hinu gagnstæða fram og nefnt í því samhengi að ekki sé hægt að finna fylgni milli auglýsinga og aukinnar drykkju t.d. ungmenna. Þetta er útúrsnúningur og ætla sér að nýta rannsóknaraðferð sem einungis er nýtt á tilraunstofum í lokuðu eða tilbúnu umhverfi eins t.d. við lyfjarannsóknir virka einfaldlega ekki sem mælitæki hvorki hvað varðar áfengisauglýsingar eða annað í þeim dúr. Slíkt er ekki hægt að mæla í margþættu samfélagi þar sem að óteljandi atriði hafa áhrif sem ekki er hægt að einangra sem gera það að verkum að ekki fæst marktæk fylgni. Þetta vita allir sem fást við rannsóknir. Grundvallar spurningin er því sú ef auglýsingar virka ekki hvers vegna er þá verið að auglýsa? Auglýsingar virka og því til sönnunar má nefna að Bandaríkjamenn gerðu könnun sem fólst í því að rannsaka ungmenni sem lent höfðu í áfengis- og vímuefnaneyslu og þar kom greinilega í ljós að gagnvart þessum hópi höfðu áfengisauglýsingar haft veruleg áhrif. ( Journal of Public Health Policy (2005) 26, 296-311)
Þetta
vekur mig til umhugsunar um alla þá vinnu sem foreldrasamfélagið og
allir þeir aðilar sem vinna með börnum og unglingum hafa lagt á sig í
forvarnaskyni. Á sjöunda og áttunda áratug síðust aldar voru
skólaskemmtanir í unglingadeildum fjarri því að vera áfengislausar og í
einhverjum tilfellum þurfti afskipti lögreglu vegna ölvunar. Sem betur
fer heyrir þetta fortíðinni til og með sífellt betri samstarfi foreldra
með tilkomu foreldrafélagana og síðar víðtæku samstarfi þeirra aðila
sem vinna með börnum og unglingum breytist ástandið hægt og sígandi til
hins betra. Markmið foreldrasamfélagsins um vímuefnalausan grunnskóla
er raunhæft og með samstilltu átaki allrar þeirra sem bera velferð
æskunnar fyrir brjósti það hefur margt áunnist þrátt fyrir gegndarlausan
áfengisáróður sem beint hefur verið sérstaklega að börnum og unglingum.
Sá sem þetta ritar veit að árangur hefði án alls efna verið betri ef
áfengisbransinn léti börn og unglinga einfaldlega í friði. Áfengisauglýsingar eru
boðflennur í tilveru barna og unglinga sem þau eiga lögvarðann rétt til
þess að vera laus við og ganga þvert á öll uppeldismarkmið
foreldrasamfélagsins .
Þetta vekur mig til umhugsunar um siðferði eða viðskiptasiðferði. Þegar að grjótharðir viðskiptahagsmunir einir ráða algerlega för án nokkurs tillits til laga eða almenns siðferðis vaknar sú áleitna spurning hvort slíkt eigi ekki við alla aðra starfsþætti viðkomandi fyrirtækis? Getur verið að sá hroki sem viðkomandi fyritæki sýnir réttindum barna og unglinga sé fyrirtækið í hnotskurn?
Þetta vekur mig til umhugsunar um hvort ekki sé óviðeigandi að eiga viðskipti við slík fyrirtæki. Er forsvaranlegt að eiga í viðskiptum við fyrirtæki sem ota áfengi á börnum manns? Að mati þess sem þetta ritar er engin spurning um að sniðganga auglýstar áfengistegundir. Myndir þú versla við kaupamann sem ýtti tóbaki að börnunum þínum. Held ekki – og því auðvitað sjálfgefið að slíkt gildi einnig við þá aðila sem ota áfengi að börnum og unglingum.
Þetta vekur mig til umhugsunar um hvers vegna við all margir foreldrar og fólk sem ber velferð æskunnar fyrir brjósti stofnuðum Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum (www.foreldrasamtok.is ). Í meira lagi undarlegt að stofna hafi þurft sérstök samtök í þeim eina tilgangi að freista þess til að farið sé að lögum? Er sennilega einstætt i hinum vestræna heimi og í raun sorglegt dæmi um lágt viðskiptasiðferði og virðingarleysi gagnvart börnum og unglingum . Bendi fólki á síðu samtakanna (www.foreldrasamtok.is )þar sem koma má á framfæri með rafrænum hætti ábendingum um brot á lögum um bann við áfengisauglýsingum.
Sýnum hug okkar í verki sniðgöngum auglýstar áfengistegundir – sýnum ábyrgð og tilkynnum um brot.

foreldrasamfélagsins .Þetta vekur mig til umhugsunar um siðferði eða viðskiptasiðferði. Þegar að grjótharðir viðskiptahagsmunir einir ráða algerlega för án nokkurs tillits til laga eða almenns siðferðis vaknar sú áleitna spurning hvort slíkt eigi ekki við alla aðra starfsþætti viðkomandi fyrirtækis? Getur verið að sá hroki sem viðkomandi fyritæki sýnir réttindum barna og unglinga sé fyrirtækið í hnotskurn?
Þetta vekur mig til umhugsunar um hvort ekki sé óviðeigandi að eiga viðskipti við slík fyrirtæki. Er forsvaranlegt að eiga í viðskiptum við fyrirtæki sem ota áfengi á börnum manns? Að mati þess sem þetta ritar er engin spurning um að sniðganga auglýstar áfengistegundir. Myndir þú versla við kaupamann sem ýtti tóbaki að börnunum þínum. Held ekki – og því auðvitað sjálfgefið að slíkt gildi einnig við þá aðila sem ota áfengi að börnum og unglingum.
Þetta vekur mig til umhugsunar um hvers vegna við all margir foreldrar og fólk sem ber velferð æskunnar fyrir brjósti stofnuðum Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum (www.foreldrasamtok.is ). Í meira lagi undarlegt að stofna hafi þurft sérstök samtök í þeim eina tilgangi að freista þess til að farið sé að lögum? Er sennilega einstætt i hinum vestræna heimi og í raun sorglegt dæmi um lágt viðskiptasiðferði og virðingarleysi gagnvart börnum og unglingum . Bendi fólki á síðu samtakanna (www.foreldrasamtok.is )þar sem koma má á framfæri með rafrænum hætti ábendingum um brot á lögum um bann við áfengisauglýsingum.
Sýnum hug okkar í verki sniðgöngum auglýstar áfengistegundir – sýnum ábyrgð og tilkynnum um brot.
mánudagur, 21. nóvember 2011
Hermann Fannar Valgarðsson
Dagsins amstur verður afar fáfengilegt þegar að þær fréttir
berast að ungur vinur manns hafi í blóma lífsins orðið bráðkvaddur. Á slíkum stundum setur mann hljóðan og maður
skilur lítt hin æðstu rök tilverunnar.
Það fór ekki fram hjá neinum þegar að unglingurinn
Hemmi mætti á svæðið ásamt góðum hópi, fremstur meðal jafningja. Vettvangurinn
var félagmiðstöðin Vitinn í Hafnarfirði
um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Eins og hans var von og vísa var
ekkert verið að tvínóna við hlutina og fyrr en varði var komin mikil aksjón í starfið. Uppátæki ungmennanna margvísleg og ávallt vörðuð óbilandi
bjartsýni æskunnar sem lætur ekki einhver praktísk atriði trufla góða hugmynd. Það var því margt brallað og stundum fannst
starfmönnum nóg um. En allt gekk þetta
vel og frábært að fylgjast með þessum
ungmennum þroskast og dafna sem sjálfstæðir og virkir einstaklingar.
Það lá beint við að Hemmi kæmi til starfa hjá ÍTH (Íþrótta-
og tómstundaráði Hafnarfjarðar) þegar að
hann hefði aldur til. Það voru í hans tilfelli óljós skil því erfitt var að
greina hvenær hann hætti að vera unglingur og varð starfsmaður. Kannski að hann hafi ekki heldur gert nein skil
sjálfur á því. Þegar við hugsum til Hemma koma upp ótrúlegustu myndir í hugann
eins og hæfileikakeppnin Höfrungur og Risapáskaeggjaunginn, aldrei lognmolla
eða óleyst vandamál. Hemmi hafði alla þá
eiginleika sem að góður starfsmaður í æskulýðsstarfi
þarf að búa yfir, hann var ungu fólki góð fyrirmynd, starfaði í anda sköpunar og frumkvæðis og ávallt
jákvæður. Hann vissi að mikilvægi
starfsins liggur í því að leiða saman fólk, byggja upp virk samskipti og gefa ungu fólki kost á að vinna saman undir merkjum lýðræðis að
margvíslegum verkefnum. Að gefa ungu
fólki kost á því að öðlast félagslegan þroska og félagslega hæfni í gegnum hin
ýmsu viðfangsefni . Með öðrum orðum að gefa ungu fólk kost á að menntast í
víðtækasta skilning þess orðs.
Þessar góðu eigindir nýtust Hemma örugglega vel á öðrum
vettvangi og í hans margvíslegu
verkefnum síðustu ára. Það er afar sárt að kveðja góðan vin sem
yfirgefur okkur allt og fljótt. Mest er þó sorg Söru, sonar þeirra og nánustu
skyldmenna. Um leið og við vottum þeim okkar dýpstu samúð þá þökkum við fyrir
að hafa átt vináttu Hemma í gegnum árin
og góðar minningar um góðan dreng – blessuð sé minning hans.
Árni Guðmundsson fv. æskulýðs- og tómstundafulltrúi
Hafnarfjaðrar
Geir Bjarnason
forvarnafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar
miðvikudagur, 16. nóvember 2011
Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2011
Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2011
Menntavísindasvið Háskóla Íslands v/Stakkahlíð - Bratti 19. nóvember 2011 - Kl. 10:00 – 17:00
Undirbúningshóp skipa; Óskar Dýrmundur Ólafsson formaður Æskulýðsráðs, Árni Guðmundsson MVS HÍ, Andrea Hjálmsdóttir Félagsvísindadeild HA, Jón Sigfússon R&G og Stefán Hrafn Jónsson formaður Ráðgjafarnefndar um æskulýðsrannsóknir. Aðrir samstarfsaðilar eru: Félag fagfólks í frítímaþjónustu FFF og Rannsóknarstofa í Bernsku- og æskulýðsfræðum BÆR.
Þátttökugjald er 500 kr og frítt fyrir nema - Vinsamlegast skráið ykkur í póstfangið arni@hi.is
Laugardagur 19. nóvember 2011
- Dagskrá-
Ráðstefnustjóri: Stefán Hrafn Jónsson.
10:10 Ávörp
Jón Torfi Jónasson forseti Menntavísindasviðs HÍ og
Óskar Dýrmundur Ólafsson formaður Æskulýðsráðs.
10:20 Skýrsla ráðgjafanefndar um æskulýðsrannsóknir – Dr. Stefán Hrafn Jónsson HÍ.
10:50 Hugmynda- og aðferðafræði skátahreyfingarinnar -Dr. Ólafur Proppé.
11:20 Forvarnir gegn átröskunum meðal unglingsstúlkna, Elva Björk Ágústsdóttir M.A ( Höf Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur, Elva Björk Ágústsdóttir M.A. í sálfræði, Friðrik H. Jónsson, prófessor í sálfræði við HÍ og Fanney Þórsdóttir, lektor í sálfræði við HÍ.).
11:50 Umfang og áhrif reykinga í kvikmyndum - Sólveig Karlsdóttir Embætti landlæknis.
12:10 Félagsmiðstöðvar í Reykjavík – Gísli Árni Eggertsson M.ph Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur.
12:40 Börn og sjónvarp á Íslandi – Dr Þorbjörn Broddason HÍ og Dr Kjartan Ólafsson HA.
13:10–14:00 Hádegishlé
14:00 Málstofur
Stofa K 205 / Stofa K 206
14:00
Áhrif tveggja ára skólaíhlutunar á holdafar, hreyfingu og þrek 7 ára barna. - Dr. Kristján Þór Magnússon.
Tómstundamennt á Íslandi – Vanda Sigurgeirsdóttir Lektor HÍ.
14:25
Líðan, félagsleg tengsl og þátttaka í skipulögðu frístundastarfi, Ungmenni í 8.-10. bekk sem alast upp á heimili þar sem annað móðurmál en íslenska er töluð: - Guðrún Inga Baldursdóttir, nemi í sálfræði í HR (Leiðbeinendur: Bryndís Björk Ásgeirsdóttir Háskólinn í Reykjavík og Hrefna Guðmundsdóttir Frístundamiðstöðinni Kampur.
Þróun fagumhverfis – sjónarhorn félagsuppeldisfræðinnar – Árni Guðmundsson M.Ed – HÍ.
14:50
Tengsl bjagaðrar líkamsmyndar við þyngdarstjórnun unglingsstúlkna í eða undir kjörþyngd -Ársæll Arnarsson og Nanna Ingibjörg Viðarsdóttir.
„Þetta er svo miklu dýpra en bara að sitja með þeim og hanga“ – Starfsfólk í félagsmiðstöðvum ÍTR - Hulda Valdís Valdimarsdóttir M.A.
15:15
Síðdegiskaffi
15:35
Afdrif ungmenna sem tóku þátt í Hálendishópnum 2001-2005 - Hervör Alma Árnadóttir lektor HÍ.
Fagmennska í frístundaheimilum: Hver er sýn starfsmanna?
Kolbrún Þ. Pálsdóttir Doktorsnemi við Menntavísindasvið HÍ
16:00
Er siðferðilega rétt að berjast gegn offitu? Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur
Tómstundafræði og rannsóknir? Jakob F Þorsteinsson M. A – HÍ.
16:25
Maður lærir líka að vera góður - Sýn unglinga á félagsmiðstöðvar og eigin þátttöku í starfi þeirra. - Eygló Rúnarsdóttir M.A. Skóla og frístundasviði Reykjavíkurborgar.
Atgervi ungra Íslendinga- Hreyfing og holdafar. Sandra Jónasdóttir M.S. doktorsnemi við MVS
17:00
Kynningar á veggspjöldum -
Ráðstefnuslit
föstudagur, 11. nóvember 2011
Ert þú búin að skrifa undir ?
Einelti er er alvarlegt mál - ert þú búin að sýna hug þinn í verki gagnvart þessari vá sem einelti er? Þú getur gert það með því að undirrita meðfylgjandi sáttmála:
"Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og einnig allra hópa sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd. Við munum öll hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til þess að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er"
Undirritun hér

þriðjudagur, 11. október 2011
Swatch - samhengi þó síðar yrði
Fyrir allmörgum árum var ég á leið með ferju frá Álandseyjum til Svíþjóðar. Sé þetta fína úr í fríverslun ferjunnar og á þessu þokkalega verði. Festi kaup á því „med det samme“ Hef átt þetta ágæta úr síðan og það í alla staðið reynst mér vel. Eins og gengur og gerist þá gaf ólin sig með tímanum þannig að ég brá mér til úrsmiðs sem reyndar áttu eftir að vera fleiri en einn áður en yfir lauk..
Sá fyrsti sagði umsvifalaust „ Við fáum aldrei neitt frá þessum aðila, ég get ekkert gert fyrir þig“ . Sá næsti sagði „ Þetta er drasl við komum ekki nálægt þessu“. Sá þriðji sagði „Það er ekkert hægt að gera við þetta nema skipta um rafhlöðu og búið“. Sá fjórði var á sömu skoðun og kollegar hans en hann kvaðst geta fiffað ól á úrið sem og hann gerið af stakri prýði og nákvæmni sem einkennir þessa ágætu stétt. Skildi þetta ekki alveg en fann á öllu viðmóti að úrsmiðum almennt, sem eru að öllu jöfnu eru ljúft fólk, var meinilla við úr eins og mitt.
Víkur nú sögunni til Noregs en þangað sótti ég fund í starfshóp í tengslum við starf mitt s.l. vor. Hitti þar kollega minn við Háskólann í Vestfold. Sá er félagsuppeldisfræðingur og virtur fræðimaður á sínu sviði. Einhvern vegin barst það í tal að viðkomandi hafði unnið um fimm eða sex ára skeið á auglýsingastofu og í framhaldi af því spannst umræða um hvort hann hafi ekki gert eitthvað sem hann sjái eftir? Jú það var því miður margt sagði hann, kaupið var verulega gott og oft spennandi verkefni en inn á milli voru verkefni sem voru algerlega á jaðrinum og verkefni sem hann hefði helst ekki vilja koma nálægt og hefði jafnvel skammast sín fyrir eftirá.
Eitt verkefni fannst honum þó allra verst en það var þegar að auglýsingastofan sá um að skipuleggja víðtæka auglýsingaherferð á einhverjum drasl úrum, gott ef öll Skandinavia var ekki undir. Úrin væru svo léleg að ef þau biluðu þá þyrfti yfirleitt að henda þeim, það væri hægt að skipta um rafhlöðu, það væri ekki einu sinn hægt að fá ólar á úrin, ekki hægt að skipta um gler og ef vísir losnaði af þá var úrið ónýtt.. „Við auglýstum þetta fyrir gríðarlegar upphæðir sem hágæða vöru og það var eins og við manninn mælt sala rauk upp en úrsmiðirnir urðu vægast sagt óhressir og sögðu að þetta Swatch dót væri algert drasl“ .
Leit á úrið mitt og skyldi þar með undarlega ónotaleg viðbrögð íslenskar úrsmiða.

miðvikudagur, 5. október 2011
Maður spyr sig ?
Eiður Guðnason f.v. ráðherra og þingmaður skrifar góða grein um málefni Ríkisútvarpsins í Fréttablaðið í dag.
Í lok greinarinnar varpar Eiður fram spurningu, sem margir hafa spurt en í fáu verið svarað, um endalausar og kolólöglegar áfengisauglýsingar í Ríkisútvarpinu. Einbeittur brotvilji og virðingarleysi gagnvart lögvörðum réttindum barna og ungmenna er Ríkisútvarpinu til skammar.
Á þessu þarf stjórn Ríkisútvarpsins að taka ? Sérstaklega þar sem framkvæmdastjórinn lætur sig þessu augljósu sí brot lítt varða? Hve lengi á þetta að viðgangast? Þarf að dæma Ríkisútvarpið til þess að fara að lögum um bann við áfengisauglýsingum ? Ætlar stjórn Ríkisútvarpsins virkilega að koma sér í slíka stöðu , maður spyr sig?

sunnudagur, 25. september 2011
Veit ekki hvort myndin er táknræn en ...
Myndir og eða myndataka segja oft mun meira en það sem sagt er í viðtölum. Þessi mynd er af hinum ágæta vef www.fotbolti.net - Óneitanlega afar ironiskt að sjá krosstákn í mynd vinstarmegin. Sérstaklega ef litið er til þeirrar erfiðu stöðu sem lið Grindavíkur er í nú fyrir lokaumferð Íslandsmótsins í knattspyrnu
fimmtudagur, 22. september 2011
laugardagur, 10. september 2011
Er verið að gera grín að bæjarbúum?
...spyr ritstjóri Fjarðarpóstsins um verulega takmarkað upplýsingagildi fundargerða nefnda og ráða hjá Hafnarfjarðarbæ. Að flestu leyti með réttu en í þessu tilfelli sem hér er sýnt ( FP 8.sept 2011) er fundagerðin nákvæmlega eins staða málsins - tabula rasa. Staða þessa máls er samkvæmt þessu í besta falli blanko.
Eðlileg færsla og samræmi við stöðu málsins væri að færa eftirfarandi til bókar: "Unnið er áfram að verulegum niðurskurði í málefnum barna og unglinga, nú undir formerkjum skipulagsbreytinga. Reiknað er með, að með breyttum störfum, nýju starfsfólki á umtalsvert lægri launum og nýjum starfslýsingum sem að mestu leyti gera ekki ráð fyrir fagmenntun, sparist um það bil 27% umfram þann verulega niðurskurð sem þegar hefur komið til framkvæmda í málaflokknum. Fúskvæðing geirans gengur með ágætum."
Nei maður á ekki að grínast með svona há alvarlegt mál. Umræður hafa sennilega verið öllu alvarlegri á fundinum m.a. í ljósi þess að málið er unnið í verulegu ósætti við allt umhverfið. Nánast engin (12 af 13) af fyrrverandi yfirmönnum sækja um stöður í "nýrri stjórnsýslu". Það er grafalvarleg staða og hverning ætla menn að mæta því gríðarlega raski þegar að uppsagnarfrestur fjölda reyndra og vel menntaðra lykilstarfsmanna rennur út á næstu vikum? Af slíku hljóta allir ábyrgir aðilar að hafa verulega áhyggjur. Sjá nánari umfjöllun ( http://addigum.blogspot.com/2011/08/hvar-er-fagmennskan.html )
Hitt er svo verulegt umhugsunarefni til hvers menn eru eiginlega að skrifa fundargerðir ef ekkert kemur fram í þeim sem hönd er á festandi. Ef þetta snýst um launagreiðslur til hinna kjörnu fulltrúa fyrir fundasetur er þá ekki allt eins betra að viðkomandi stimpli sig inn eins og annað launfólk? Veit það ekki en tek undir með ritstjóra Fjarðarpóstsins um að í þessum efum er verulegt rými til framfara - Alvöru fundargerðir eru grundvallaratriði í opinni og upplýstri stjórnsýslu.

fimmtudagur, 1. september 2011
Sá skrímslið ...greinilega
Veit það sem er að Lagarfljótsormurinn er bara lítill ormur ef litið er til frænda hans, eða réttar sagt frænku hans, Nessie, sem ku búa í hinu djúpa og mikilfenglega vatni Loch Ness í Skotlandi.
Sannreyndi það um daginn eins og meðfylgjandi ljósmynd sýnir greinilega. Ég er sem sagt einn af örfáum sem hef séð og náð skrímslinu á mynd. Fór fyrir nokkru mikin leiðangur um þessar ægifögru slóðir sem Loch Ness og umhverfi þess er.
Ég geri mér grein fyrir því að ég eins og aðrir ljósmyndarar sem hafa náð myndum af skrímslinu mun sæta gagnrýni og jafnvel ávirðingum um að myndin sé fölsuð. Ég gef ekkert fyrir það, náði mynd af skrímslinu. Hvort það var skrímslið innra með okkur öllum eða hin fræga Nessie læt ég mér í léttu rúmi liggja. Manneskjan mætir sjálfri sér og sínum innsta kjarna andspænis fegurð náttúrunnar hvort sem það er við hið fagra vatn Loch Ness eða á bökkum Lagarfljóts fyrir austan. "Í mér blundar fól" sagði presturinn og útvarpsstjórinn Heimir Steinsson. Púkar, skrímsli og ormar blunda í okkur öllum hvort sem við náum því á "mynd" eða ekki. Getur verið að svo sé í þessu tilfelli og ef svo er, er þá myndin spegill sálarinnar? Er okkur öllum ekki hollt að taka slíkar myndir af og til?

miðvikudagur, 24. ágúst 2011
Hvar er fagmennskan ?
Að sameina starfsemi félagsmiðstöðva og heilsdagsskóla (HS) í Hafnarfirði er skynsamleg ráðagerð. Það hefði reyndar mátt ganga enn lengra með því að færa félagsmál aldraðra undir ÍTH en það er önnur umræða. Eins vel og þessi sameining hljómar þá er framkvæmdin og innleiðingin út úr öllu korti. Það er sorglegt að forsvarsmenn fjölskyldusviðs virðast ekki vita mikið um málaflokkinn og eða skilja mikilvægi hans. Þetta lýsir sér í því að viðkomandi nýta fagleg sóknarfæri fyrst og fremst til þess að skera niður og gjaldfella starfsemina sérstaklega hvort sem horft er til fjármuna eða fagmennsku sbr Excel skjöl af ýmsum toga um útfærslu á þessum skipulagsbreytingum. Hvernig staðið var að (fjölda) uppsögnum í sambandi við þessar breytingar, tímasetningar, lögfræðilegar tilvísanir, starfslok o.fl er kapítuli út af fyrir sig og sætir furðu að Starfsmannafélag Hafnafjarðar hafi ekki látið sig málið varða? Allt virðist þetta gert í þeim tilgangi að lækka lág laun enn frekar með starfsheitabreytingum.
Samkvæmt atvinnuauglýsingum ( Sjá vef Hafnarfjarðarbæjar) um störf í nýju skipulagi eru gerðar afar takmarkaðar kröfur til starfsmanna (sem reyndar hefur vakið athygli víða og er umtalað í fagumhverfinu). Sjá auglýsingu um Frístundaleiðbeinendur . Starfsfyrirkomulagið byggir að virðist á einhverjum tveimur „farandfagmönnum“ , sem þó þurfa ekki , samkvæmt annarri auglýsingu á sama vef ( Verkefnastjóri frístundastarfs), að hafa viðeigandi háskólamenntun né reynslu af starfsemi af þessum toga. Viðkomandi „fagmenn“ eiga síðan að koma inn á hinum ýmsu starfstöðum sem „sérfræðingar“ þegar að á mæðir og þörf gerist (sbr Excel útfærslu/ bls 13, Greinagerð starfshóps) ? Það er einnig stórkostlegt álitamál hvernig einhver deildastjóri á að starfa sem næsti yfirmaður rúmlega 50 starfsmanna sem vinna á fjölda starfsstaða (bls 13, Greinargerð starfshóps). Þetta er algert metnaðarleysi þar sem markmiðið virðist fyrst og fremst vera að skera ennþá meira niður í þessum mikilvæga málaflokk en gert hefur verið á umliðnum árum og þykir þó flestum nóg um, ekki síst unga fólkinu sem sýndi hug sinn í verki með eftirminnilegum hætt með mótmælum við bæjarskrifstofurnar haustið 2009.
Innleiðing á þessari löngu tímabæru sameiningu hefði mátt útfæra með einföldum og tiltölulega átakalitlum hætti. Grundvallaratriði er að byggja breytingarnar á uppeldisfræðilegum forsendum fremur en einhverjum Excelskjölum. Það sparast strax við sameiningu umtalsverðar fjárhæðir vegna minni kostnaðar við yfirstjórn HS í hverjum skóla . Með aðhaldi, reyndu og góðu fagfólki má útfæra þetta svo vel verði og samlegðaráhrif verði enn meiri. Hitt er svo öllu verra að fjöldi lykilstarfsmanna ÍTH, vel menntuðu fólki á sviði æskulýðsmála , traustu og virtu fagfólki, er svo misboðið að viðkomandi sækja ekki um „niðurfærð“ störf í nýju skipulagi og hverfa á braut. Það er afspyrnu slæmt en segir það sem segja þarf, eru óþægilega skýr skilaboð sem vert er að taka mark á. Í þeim gögnum sem ég hef séð er lítið fjallað um innhald starfseminnar, uppeldisfræðileg markmið, starfsskrá eða annað í þeim dúr. Ég get ekki heldur séð að ágæt umsögn kollega minna í Háskóla Íslands um aukna fagmennsku og mikilvægi menntunar á þessu fagsviði hafi ratað inn í þessa útfærslu (sem nb er að virðist önnur en óskað var umsagnar um )? Það er leitt að horfa upp á þetta klúður sem seint verður flokkað undir fagmennsku. Ég ráðlegg bæjaryfirvöldum eindregið að endurskoða þessa innleiðingu frá A- Ö og framkvæma þetta af einhverjum þeim metnaði og fagmennsku sem er bæjarfélaginu sæmandi. Í því liggja hin faglegu sóknarfæri og raunverulegur „arður“ - Æskan er okkar fjársjóður.
Grein þessi birtist í Fjarðarpóstinum 25.águst

fimmtudagur, 18. ágúst 2011
Hin grjótharða íslenska láglaunapólitík
Mestu öfugmæli sveitarfélaga og annara vinnuveitanda í kjaramálum ( s.l. 30 - 40 ár amk) er frasinn að allt fari til andskotans í efnahagsmálum ef laun hækki. Þangað er allt farið og enn hanga viðsemjendur launafólks á grjótharðri láglaunapólitík eins og hundar á roði, við erum ennþá í þessum láglaunpytti.
Ef litið er til sögunnar þá hefur aldrei verið ráðrúm til launahækkana, hvorki í góðærum eða á samdráttarskeiðum. Rök vinnuveitenda hafa hverju sinni verið gaumgæfilega útfærð og ekkert endilega í samhengi við þau sem áður voru eða eftir á komu. Í góðærum ógna launahækkanir "stöðugleika" og á samdráttarskeiðum "þarf" að leggja niður og draga saman grunnþjónustu ef laun fara yfir fátækrarmörk. Allt rök sem vega að öryggistilfinningu fólks og ala á ótta þess. Svona mætti lengi telja og þegar að mest á mæðir taka talsmenn vinnuveitenda þetta á "tárakirtlunum" enda eftir nokkru að slægjast, stöðug láglaunapólitík í húfi .
Það sem verra er að margur trúir því að hin grjótharða íslenska láglaunapólitík sé orsök alls okkar vanda. Þokkalegt sjónvarpstæki og notaður 7 ára gamal fjölskyldubíll er talin orsök hrunsins mikla. Og það að eiga eða hafa þokkalega umgjörð um sig og sína þykir lúxus hérlendis en meðal flestra þjóða talið til grunnþarfa. Íslensk láglaunapólitík er félagslegt böl og varð m.a. til þess að hrunið kom verr niður á okkur en ella.
Sænska dagblaðið Dagens Nyheter, sem seint verður talið málsvari félagshyggjunnar, birti, í kjölfar hrunsins hérlendis, m.a. grein í þessa veru. Í greininni var því haldið fram að vegna lágra launa í hinu íslenska samfélagi "allsnægta" þá hefðu íslendingar fjármagnað neyslu sína með lánum fremur en sparnaði af launum eins og ku vera alsiða í nágrannalöndum okkar þar sem ríkari sátt er um skiptingu auðsins en hérlendis. Í stað sanngjarnar tekjuskiptingar í efnuðu íslensku samfélagi hefði fjármagn safnast á nánast einn stað, í bankakerfið sem síðan lánaði öllu sem hreyfðist (m.a ómálga börnum - innskot ÁG) á okur vöxtum með hræðilegum afleiðingum eins og launafólk margt hvert hefur fengið að reyna í kjölfar hrunsins.
Verkalýðshreyfingin þ.m.t. ég sem f.v. formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar og f.v. stjórnarmaður í BSRB m.m. höfum ekki staðið okkur sem skyldi á umliðnum árum eða áratugum. ASÍ hefur að vísu átt góða spretti en betur má ef duga skal. BSRB hefur oft verið meira áberandi en um þessar mundir.
Leikskólakennarafélagið sýnir gríðarlegan styrk um þessar mundir. Frammistaða formannsins í Kastljósi þar sem hann blés á og hrakti hefbundin harmakvein kjarasviðs sveitarfélaganna, var afar góð. Það er einlæg von mín að leikskólakennarar nái markmiðum sínum, enda algerlega nauðsynlegt að brjóta á bak þessa grjóthörðu íslensku láglaunapólitík. Það er eitt af mikilvægustu verkefnum samtímans og ekki síst sem liður í því að byggja upp samfélag sem byggir á öðrum gildum en þeim sem komu okkur til "andskotans". Með því að ganga fram fyrir skjöldu og berjast af einurð og festu fyrir bættum kjörum hafa leikskólakennarar sýnt í verki að þeir eru verðugir fulltrúar samfélagsins til þess að innleiða nýja launastefnu, sem er grundvallarforsenda fyrir sátt í samfélaginu.

þriðjudagur, 9. ágúst 2011
Formannsmyndin tilbúin en að vísu á eftir að kjósa
Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og laganemi, hefur gefið kost á sér til formennsku í Sambandi ungra sjálfstæðismanna. Framboðsmyndin er ekki af verri endanum og sómir sér vel innan um myndir af reynslunnar mönnum eins og hér má sjá.
Ólafur Ragnar lét sem kunnugt er taka af sér "forsetamyndina" áður en hann var kosin forseti. Hvort þetta bragð nýtist sjálfstæðismanninn unga skal ósagt látið en óneitanlega verður fróðlegt að fylgjast með hverning til tekst.
Myndin er full íhaldssöm og stöðluð fyrir minn smekk - Nútímatæki eins og gemmsi á borðinu hefði komið þessari mynd inn í 21. öldina og höfðað til fleiri en Félags eldri Sjálfstæðismanna - En hvað með það myndin vekur umfjöllun og þar með er takmarkinu sennilega náð... eða hvað ?

sunnudagur, 31. júlí 2011
Hvílík fegurð
fimmtudagur, 30. júní 2011
Anders Guðmundsson og fjölskylda fórst í Líbíu
Mér bárust þær sogarfréttir frá Hr. Gnanih í gegnum Fésbókina að íslendingurinn Anders Guðmundsson og fjölskylda hans sé öll eftir sprengjuárás manna Gaddafis í Libíu. Svo virðist sem þessi frétt hafi algerlega farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum - skil ekki hvers vegna og ekki heldur hvers vegna Hr. Gnanih er að tilkynna mér þetta sérstaklega. Mun leggja til við lögmaninn að hann snúi sér til fjármálaráðuneytisins eða íslenskra skattayfirvalda. Þó ég sé ríkistarfsmaður þá er ég ekkert í erfðamálum. Birti bréfið hér meðfylgjandi:
"Advocate Raphael Gnanih
O6.BP:311 République du Bénin
Telephone: +229 99387948
Attn:Mr. Árni Guðmundsson
I am Advocat Raphael Gnanih an attorney to Late Anders Guðmundsson, a national of your country, who used to work as the Director of Arabian Gulf Oil Company in republic of Libya West Africa, On 20th Match 2011, my client and his family were attacked by Gaddafi rebel force on his way escaping out of the country during the on going crisis in Libya, unfortunately my client and his family were involved in bombing explosion on there way, I was now in Benin Republic with my family for some months now due to the crisis going on in Libya, my late client had an account valued at about $10.5 Million United States Dollars deposited in the bank of Benin west African I want the proceeds of the amount to be paid into your bank account, then we will share it by percentage 60/40 Please send me your address for more information. My email raphaelgnanih1@9.cn
Your email address.
Occupation and Telephone Number
Regards.Barrister Raphael Gnani"

fimmtudagur, 16. júní 2011
Frábær árangur hjá Jóhönnu
| Fjarðarpósturinn 16. júní 2011 |
föstudagur, 10. júní 2011
Háskólaumhverfið, sérhagsmunasamtök og lýðræðisleg umræða
Það voru fullkomin mistök að leggja niður Þjóðhagsstofnun á sínum tíma. Það var pólitísk ákvörðun byggð á forsendum frjálshyggjunnar. Þjóðhagsstofnun hafði "orðið það á" að spá ekki því eilífðar sólskini sem var í hugum forsvarsmanna frjálshyggjunnar og þá sérstaklega þv. forsætisráðherra og helstu ráðgjöfum hans. Við tóku greiningardeildir bankanna og "sérfræðingar" þeirra sem sáu tækifæri í öllu og alltaf var sama sólskinið í efnahagslífinu en því miður algerlega óháð því hvert hið raunverulega ástand var. Tengsl fjármálalífsins og akademíunnar var að einhverju leyti með þeim hætti að stuðningur viðskiptalífsins var "háður" góðum fréttum sbr. ummæli framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja:
"Eftir fyrirlesturinn fékk Gylfi símtal frá Guðjóni Rúnarssyni, framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja, sem kvartaði undan fyrirlestrinum. Á fundi þeirra nokkrum dögum síðar, þar sem var líka Þórólfur Matthíasson prófessor, tjáði Guðjón þeim Gylfa og Þórólfi að Samtök fjármálafyrirtækja mundu ekki aftur styrkja fyrirlestra á vegum Hagfræðideildar HÍ. Fyrir rannsóknarnefnd
Alþingis sagði Guðjón að ástæða þessa hefði verið sú að hann hefði fengið villandi upplýsingar um efni fyrirlestrarins. Hann hefði komið úr allt annarri átt en þeir áttu von á." ( Rannsóknarnefnd Alþingis VIÐAUKI 1 – SIÐFERÐI OG STARFSHÆTTIR Í TENGSLUM VIÐ FALL BANKANNA 2008, bls 225-226)
Sumt segir sig sjálft í bókstaflegir merkingu. Ekki verður hjá því komist að velta fyrir sér hlutverki háskólasamfélagsins og þá hvort það hafi að einhverju leiti breyst eftir hrunið?
Kvótafrumvarpið hrákasmíð
„Sérfræðingur við Lagastofnun HÍ gerir alvarlegar athugasemdir við nánast öll ákvæði frumvarpsins og leggur til að það verði fellt eða taki verulegum breytingum í meðferð þingsins. Hið svokallaða minna kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra á sér fáa líka í flokki óvandaðra lagafrumvarpa á sviði íslenskrar fiskveiðistjórnunar."
Þetta segir Helgi Áss Grétarsson sérfræðingur við Lagastofnun Háskóla Íslands í umsögn sinni um frumvarpið sem lögð var fram í dag. Hann gerir alvarlegar athugasemdir við nánast öll ákvæði frumvarpsins og leggur til að frumvarpið í heild verði fellt eða þá að það taki verulegum breytingum í meðförum þingsins. Landssamband íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, kostar stöðu sérfræðings til rannsókna í auðlindarétti við Lagastofnun Háskóla Íslands.“ (RUV 6/6 2011)
Lagastofnun og LÍÚ semja um 22,5 milljón króna styrk
„Landssamband íslenskra útvegsmanna og Lagastofnun Háskóla Íslands hafa skrifað undir samning um kostun starfs sérfræðings til rannsókna í auðlindarétti við Lagastofnun. Samningurinn tekur gildi þann 1. ágúst 2009 og kemur í stað fyrri þriggja ára samnings sömu aðila. LÍÚ greiðir Lagastofnun kr. 7,5 milljónir árlega vegna stöðunnar.
Markmið samningsins er að efla rannsóknir á sviði auðlindaréttar. Lagastofnun mun á grundvelli samningsins láta fara fram lögfræðilegar rannsóknir á reglum um fiskveiðistjórnun og réttarstöðu þátttakenda í fiskveiðistjórnunarkerfum. Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur, sem hefur sinnt stöðu sérfræðings við þessar rannsóknir undanfarin ár, mun starfa áfram á grundvelli samningsins. Umsjónarmaður náms í auðlindarétti skal hafa faglegt eftirlit með rannsóknarverkefninu og framvindu þess. Samningurinn er óuppsegjanlegur á samningstímanum og hefur LÍÚ enga aðkomu að rannsókninni eða rannsóknarniðurstöðum frekar en samkvæmt fyrri samningi.
María Thejll, forstöðumaður Lagastofnunar, segir samninginn mjög mikilvægan fyrir stofnunina á tímum samdráttar og niðurskurðar...“ (Vefur HI.is)
Gestir óánægðir með ræðu prófessors
„Baulað var á Ragnar Árnason, prófessor í fiskihagfræði, þegar hann hélt ávarp á hátíðardagskrá Sjómannadagsins á Granda í dag. Ragnar sagði að grafið hafi verið kerfisbundið undan framfarasókn í sjávarútvegi en nú hafi þessi ógn margfaldast. Ragnar sagði þau kvótafrumvörp sem nú hafa verið lögð fram kollvarpa gildandi kerfi fiskveiða, verði þau að lögum.
Nokkrir gestir létu óánægju sína með ræðu Ragnars í ljós með bauli.
Jón Bjarnason flutti einnig ræðu, þar sagði hann að Íslendingar myndi ekki láta fiskimiðin af hendi, hvorki til ríkjasambanda né fyrirtækja.“ (RUV 5/6 2011)
Beinn fjárhagslegur stuðningur
„Beinn fjárhagslegur stuðningur einstakra fyrirtækja við viðskiptadeildirnar leiddi oft á tíðum til sjálfsritskoðunar meðal nemenda og kennara skólanna. Ég man t.d. eftir einu atviki þar sem ég fjallaði um hegðun stjórnenda Eimskips á níunda áratug síðustu aldar til að útskýra það sem hagfræðin kallar
Umboðsvandann (principal agent problem). Umboðsvandinn felst í aðstæðum þar semhagsmunir margra smárra eigenda fyrirtækis og stjórnenda þess fara ekki saman. Einn nemandi minn klagaði mig fyrir að fjalla á neikvæðan hátt um Eimskip í kennslustofu sem kennd var við Eimskip. Þetta og önnur sambærileg atvik urðu til þess að ég var eindregið hvött til þess af stjórnendum skólans að fjalla á jákvæðan hátt um íslensk fyrirtæki. Í kjölfarið ákvað ég að draga mig út úr opinberri umræðu um málefni sem tengdust beint íslenskum fyrirtækjum. Ég vildi halda vinnunni.“
Að öðrum kosti er hætt við að fjari smám saman undan þeirri menningu sem háskólar eru sprottnir úr og þeir hafa stuðlað að. Í siðareglum Háskóla Íslands eru ákvæði um ábyrgð háskólamanna gagnvart samfélaginu þar sem þeir eru hvattir til þess að efla frjáls, málefnaleg og gagnrýnin skoðanaskipti og minntir á ábyrgð sína sem háskólaborgarar." (Rannsóknarskýrsla Alþingis - VIÐAUKI 1 – SIÐFERÐI OG STARFSHÆTTIR Í TENGSLUM VIÐ FALL BANKANNA 2008, bls 220)
"Háskólar hafa því ekki farið varhluta af svonefndri viðskiptavæðingu samfélagsins og hafa áhyggjur manna aukist af áhrifum þess á háskólastarf, meðal annars vegna þess að siðfræði vísinda og siðferði í viðskiptum fer illa saman.(936) Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt að háskólakennarar þiggi ekki aðeins í vaxandi mæli styrki frá fyrirtækjum til að fjármagna rannsóknir sínar, heldur séu þeir og háskólarnir einnig iðulega sjálfir hluthafar í fyrirtækjunum eða fjárhagslega tengdir þeim með öðrum hætti.(937) Færð hafa verið rök fyrir því að þetta dragi úr heiðarleika fræðimanna, þrengi sjóndeildarhring þeirra og val á viðfangsefnum rannsókna.(938) Hætta á hagsmunaárekstrum stóreykst vitanlega samfara þessari þróun. Sem dæmi má nefna eftirfarandi: „Michael MacCarthy, einn af ritstjórum breska læknavísindatímaritsins The Lancet, heldur því fram að slík tengsl séu orðin svo algeng að „oft sé erfitt að finna nokkurn mann sem ekki hefur fjárhagslegra hagsmuna að gæta“ til að ritrýna fyrir tímaritið greinar um lyf eða læknismeðferð.“(939) Það er mikilvæg spurning hvernig tryggja megi sjálfstæði háskólanna gagnvart auknum fjárhagslegum hagsmunum. Hugsjónir háskólastarfsins eru í húfi"
936. Press, Eyal, og Jennifer Washburn: „Háskólar á framfærslu fyrirtækja.“ Magnús D. Baldursson þýddi og stytti. Fréttabréf Háskóla Íslands, 3. tbl. 22. árg. ágúst 2000, bls. 7. Jennifer Washburn hefur skrifað bókina University, Inc.: The Corporate Corruption of Higher Education (Basic Books 2005) þar sem hún færir rök fyrir því að viðskiptavæðing bandarískra háskóla hafi grafið undan akademískum gildum.
937. Press, Eyal, og Jennifer Washburn: „Háskólar á framfærslu fyrirtækja.“ Magnús D. Baldursson þýddi og stytti. Fréttabréf Háskóla Íslands, 3. tbl. 22. árg. ágúst 2000, bls. 7. 938. Sjá t.d. Monibot, George: „Guard Dogs of Perception: The Corporate Takeover of Science.“ Science and Engineering Ethics 9 (2003), bls. 49–57.
939. Press, Eyal, og Jennifer Washburn: „Háskólar á framfærslu fyrirtækja.“ Magnús D. Baldursson þýddi og stytti. Fréttabréf Háskóla Íslands, 3. tbl. 22. árg. ágúst 2000, bls. 7–8.
"Vísindastarf lýtur bæði þekkingarfræðilegum og siðfræðilegum viðmiðum sem eru forsendur þess að fræðimenn gæti hlutlægni.(963) Háskólar hafa notið mikils trausts í samfélaginu og ætla má að það stafi ekki síst af því að fólk telji að háskólamenn leitist við í málflutningi sínum að hafa það sem sannara reynist og stenst röklega skoðun. Þessi hugsjón vísindastarfs er samofin hugmyndinni um háskóla sem griðland hugsunar sem er frjáls undan afskiptum afla sem vilja ráðskast með rannsóknir fræðimanna og niðurstöður þeirra. Þetta tengist kröfunni um hlutleysi vísinda um verðmæti, en hana má orða þannig að hún kveði á um frelsi til að fylgja fræðilegum rökum og efla vísindaleg verðmæti og frelsi undan afskiptum afla sem reyna að sveigja menn af þeirri leið í nafni verðmæta sem koma vísindum ekki við.(964) Hugsjónin er sú að fræðimönnum beri einungis að lúta staðreyndum og fræðilegum rökum og halla ekki réttu máli vegna annarra hagsmuna sem þeir kunna að hafa eða vegna þrýstings utanaðkomandi afla. Í viðleitni sinni til þess að hafa þessa hugsjón í hávegum er mikilvægt að vísindasamfélagið sé á varðbergi gagnvart því hvernig fræðin kunna að vera misnotuð til að þjóna sérhagsmunum í samfélaginu." (Rannsóknarskýrsla Alþingis - VIÐAUKI 1 – SIÐFERÐI OG STARFSHÆTTIR Í TENGSLUM VIÐ FALL BANKANNA 2008, bls 220)
Almenningur í landinu ,sem seint flokkast undir þrælskipulögð hagsmunasamtök, á ekki fúlgur fjár til þess að kosta rannsóknir í sína þágu. Er það hlutverk vísindasamfélagsins að hlaupa á eftir þeim aðilum sem hafa yfir fjármagni að ráða ? Og er hægt að gera ráð fyrir því að í þeim tilfellum séu vísindamenn óháðir? Eiga kostaðar fræðilegar úttektir að vera grunnur lýðræðislegrar umræðu í samfélaginu? Á hugtakið vanhæfi ekki við í íslensku háskólasamfélagi. Þarf háskólasamfélagið ekki að hefja sig upp yfir allan vafa? Held að það hljóti að vera krafa samtímans og ekki síst í ljósi þeirra hremminga sem íslenskt þjóðfélag hefur átt í síðustu ár.
"Eftir fyrirlesturinn fékk Gylfi símtal frá Guðjóni Rúnarssyni, framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja, sem kvartaði undan fyrirlestrinum. Á fundi þeirra nokkrum dögum síðar, þar sem var líka Þórólfur Matthíasson prófessor, tjáði Guðjón þeim Gylfa og Þórólfi að Samtök fjármálafyrirtækja mundu ekki aftur styrkja fyrirlestra á vegum Hagfræðideildar HÍ. Fyrir rannsóknarnefnd
Alþingis sagði Guðjón að ástæða þessa hefði verið sú að hann hefði fengið villandi upplýsingar um efni fyrirlestrarins. Hann hefði komið úr allt annarri átt en þeir áttu von á." ( Rannsóknarnefnd Alþingis VIÐAUKI 1 – SIÐFERÐI OG STARFSHÆTTIR Í TENGSLUM VIÐ FALL BANKANNA 2008, bls 225-226)
Sumt segir sig sjálft í bókstaflegir merkingu. Ekki verður hjá því komist að velta fyrir sér hlutverki háskólasamfélagsins og þá hvort það hafi að einhverju leiti breyst eftir hrunið?
Kvótafrumvarpið hrákasmíð
„Sérfræðingur við Lagastofnun HÍ gerir alvarlegar athugasemdir við nánast öll ákvæði frumvarpsins og leggur til að það verði fellt eða taki verulegum breytingum í meðferð þingsins. Hið svokallaða minna kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra á sér fáa líka í flokki óvandaðra lagafrumvarpa á sviði íslenskrar fiskveiðistjórnunar."
Þetta segir Helgi Áss Grétarsson sérfræðingur við Lagastofnun Háskóla Íslands í umsögn sinni um frumvarpið sem lögð var fram í dag. Hann gerir alvarlegar athugasemdir við nánast öll ákvæði frumvarpsins og leggur til að frumvarpið í heild verði fellt eða þá að það taki verulegum breytingum í meðförum þingsins. Landssamband íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, kostar stöðu sérfræðings til rannsókna í auðlindarétti við Lagastofnun Háskóla Íslands.“ (RUV 6/6 2011)
Lagastofnun og LÍÚ semja um 22,5 milljón króna styrk
„Landssamband íslenskra útvegsmanna og Lagastofnun Háskóla Íslands hafa skrifað undir samning um kostun starfs sérfræðings til rannsókna í auðlindarétti við Lagastofnun. Samningurinn tekur gildi þann 1. ágúst 2009 og kemur í stað fyrri þriggja ára samnings sömu aðila. LÍÚ greiðir Lagastofnun kr. 7,5 milljónir árlega vegna stöðunnar.
Markmið samningsins er að efla rannsóknir á sviði auðlindaréttar. Lagastofnun mun á grundvelli samningsins láta fara fram lögfræðilegar rannsóknir á reglum um fiskveiðistjórnun og réttarstöðu þátttakenda í fiskveiðistjórnunarkerfum. Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur, sem hefur sinnt stöðu sérfræðings við þessar rannsóknir undanfarin ár, mun starfa áfram á grundvelli samningsins. Umsjónarmaður náms í auðlindarétti skal hafa faglegt eftirlit með rannsóknarverkefninu og framvindu þess. Samningurinn er óuppsegjanlegur á samningstímanum og hefur LÍÚ enga aðkomu að rannsókninni eða rannsóknarniðurstöðum frekar en samkvæmt fyrri samningi.
María Thejll, forstöðumaður Lagastofnunar, segir samninginn mjög mikilvægan fyrir stofnunina á tímum samdráttar og niðurskurðar...“ (Vefur HI.is)
Gestir óánægðir með ræðu prófessors
„Baulað var á Ragnar Árnason, prófessor í fiskihagfræði, þegar hann hélt ávarp á hátíðardagskrá Sjómannadagsins á Granda í dag. Ragnar sagði að grafið hafi verið kerfisbundið undan framfarasókn í sjávarútvegi en nú hafi þessi ógn margfaldast. Ragnar sagði þau kvótafrumvörp sem nú hafa verið lögð fram kollvarpa gildandi kerfi fiskveiða, verði þau að lögum.
Nokkrir gestir létu óánægju sína með ræðu Ragnars í ljós með bauli.
Jón Bjarnason flutti einnig ræðu, þar sagði hann að Íslendingar myndi ekki láta fiskimiðin af hendi, hvorki til ríkjasambanda né fyrirtækja.“ (RUV 5/6 2011)
Beinn fjárhagslegur stuðningur
„Beinn fjárhagslegur stuðningur einstakra fyrirtækja við viðskiptadeildirnar leiddi oft á tíðum til sjálfsritskoðunar meðal nemenda og kennara skólanna. Ég man t.d. eftir einu atviki þar sem ég fjallaði um hegðun stjórnenda Eimskips á níunda áratug síðustu aldar til að útskýra það sem hagfræðin kallar
Umboðsvandann (principal agent problem). Umboðsvandinn felst í aðstæðum þar semhagsmunir margra smárra eigenda fyrirtækis og stjórnenda þess fara ekki saman. Einn nemandi minn klagaði mig fyrir að fjalla á neikvæðan hátt um Eimskip í kennslustofu sem kennd var við Eimskip. Þetta og önnur sambærileg atvik urðu til þess að ég var eindregið hvött til þess af stjórnendum skólans að fjalla á jákvæðan hátt um íslensk fyrirtæki. Í kjölfarið ákvað ég að draga mig út úr opinberri umræðu um málefni sem tengdust beint íslenskum fyrirtækjum. Ég vildi halda vinnunni.“
Lilja Mósesdóttir: „Viðskiptafræði á tímum útrásar.“ Erindi á málþingi Reykjavíkurakademíunnar í Háskólabíói 25. október 2008.
(VIÐAUKI 1 – SIÐFERÐI OG STARFSHÆTTIR Í TENGSLUM VIÐ FALL BANKANNA 2008, bls 220)Háskóli vettvangur sannleiksleitar (í boði Coca Cola ?)
"Ein meginforsenda þess að háskóli geti verið vettvangur sannleiksleitar er að hann búi við frjálslynt, lýðræðislegt umhverfi sem lætur sig til að mynda varða mannréttindi á borð við tjáningarfrelsi og aðrar forsendur upplýstrar skoðanamyndunar. Að öðrum kosti er hætt við að fjari smám saman undan þeirri menningu sem háskólar eru sprottnir úr og þeir hafa stuðlað að. Í siðareglum Háskóla Íslands eru ákvæði um ábyrgð háskólamanna gagnvart samfélaginu þar sem þeir eru hvattir til þess að efla frjáls, málefnaleg og gagnrýnin skoðanaskipti og minntir á ábyrgð sína sem háskólaborgarar." (Rannsóknarskýrsla Alþingis - VIÐAUKI 1 – SIÐFERÐI OG STARFSHÆTTIR Í TENGSLUM VIÐ FALL BANKANNA 2008, bls 220)
"Háskólar hafa því ekki farið varhluta af svonefndri viðskiptavæðingu samfélagsins og hafa áhyggjur manna aukist af áhrifum þess á háskólastarf, meðal annars vegna þess að siðfræði vísinda og siðferði í viðskiptum fer illa saman.(936) Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt að háskólakennarar þiggi ekki aðeins í vaxandi mæli styrki frá fyrirtækjum til að fjármagna rannsóknir sínar, heldur séu þeir og háskólarnir einnig iðulega sjálfir hluthafar í fyrirtækjunum eða fjárhagslega tengdir þeim með öðrum hætti.(937) Færð hafa verið rök fyrir því að þetta dragi úr heiðarleika fræðimanna, þrengi sjóndeildarhring þeirra og val á viðfangsefnum rannsókna.(938) Hætta á hagsmunaárekstrum stóreykst vitanlega samfara þessari þróun. Sem dæmi má nefna eftirfarandi: „Michael MacCarthy, einn af ritstjórum breska læknavísindatímaritsins The Lancet, heldur því fram að slík tengsl séu orðin svo algeng að „oft sé erfitt að finna nokkurn mann sem ekki hefur fjárhagslegra hagsmuna að gæta“ til að ritrýna fyrir tímaritið greinar um lyf eða læknismeðferð.“(939) Það er mikilvæg spurning hvernig tryggja megi sjálfstæði háskólanna gagnvart auknum fjárhagslegum hagsmunum. Hugsjónir háskólastarfsins eru í húfi"
936. Press, Eyal, og Jennifer Washburn: „Háskólar á framfærslu fyrirtækja.“ Magnús D. Baldursson þýddi og stytti. Fréttabréf Háskóla Íslands, 3. tbl. 22. árg. ágúst 2000, bls. 7. Jennifer Washburn hefur skrifað bókina University, Inc.: The Corporate Corruption of Higher Education (Basic Books 2005) þar sem hún færir rök fyrir því að viðskiptavæðing bandarískra háskóla hafi grafið undan akademískum gildum.
937. Press, Eyal, og Jennifer Washburn: „Háskólar á framfærslu fyrirtækja.“ Magnús D. Baldursson þýddi og stytti. Fréttabréf Háskóla Íslands, 3. tbl. 22. árg. ágúst 2000, bls. 7. 938. Sjá t.d. Monibot, George: „Guard Dogs of Perception: The Corporate Takeover of Science.“ Science and Engineering Ethics 9 (2003), bls. 49–57.
939. Press, Eyal, og Jennifer Washburn: „Háskólar á framfærslu fyrirtækja.“ Magnús D. Baldursson þýddi og stytti. Fréttabréf Háskóla Íslands, 3. tbl. 22. árg. ágúst 2000, bls. 7–8.
"Vísindastarf lýtur bæði þekkingarfræðilegum og siðfræðilegum viðmiðum sem eru forsendur þess að fræðimenn gæti hlutlægni.(963) Háskólar hafa notið mikils trausts í samfélaginu og ætla má að það stafi ekki síst af því að fólk telji að háskólamenn leitist við í málflutningi sínum að hafa það sem sannara reynist og stenst röklega skoðun. Þessi hugsjón vísindastarfs er samofin hugmyndinni um háskóla sem griðland hugsunar sem er frjáls undan afskiptum afla sem vilja ráðskast með rannsóknir fræðimanna og niðurstöður þeirra. Þetta tengist kröfunni um hlutleysi vísinda um verðmæti, en hana má orða þannig að hún kveði á um frelsi til að fylgja fræðilegum rökum og efla vísindaleg verðmæti og frelsi undan afskiptum afla sem reyna að sveigja menn af þeirri leið í nafni verðmæta sem koma vísindum ekki við.(964) Hugsjónin er sú að fræðimönnum beri einungis að lúta staðreyndum og fræðilegum rökum og halla ekki réttu máli vegna annarra hagsmuna sem þeir kunna að hafa eða vegna þrýstings utanaðkomandi afla. Í viðleitni sinni til þess að hafa þessa hugsjón í hávegum er mikilvægt að vísindasamfélagið sé á varðbergi gagnvart því hvernig fræðin kunna að vera misnotuð til að þjóna sérhagsmunum í samfélaginu." (Rannsóknarskýrsla Alþingis - VIÐAUKI 1 – SIÐFERÐI OG STARFSHÆTTIR Í TENGSLUM VIÐ FALL BANKANNA 2008, bls 220)
Almenningur í landinu ,sem seint flokkast undir þrælskipulögð hagsmunasamtök, á ekki fúlgur fjár til þess að kosta rannsóknir í sína þágu. Er það hlutverk vísindasamfélagsins að hlaupa á eftir þeim aðilum sem hafa yfir fjármagni að ráða ? Og er hægt að gera ráð fyrir því að í þeim tilfellum séu vísindamenn óháðir? Eiga kostaðar fræðilegar úttektir að vera grunnur lýðræðislegrar umræðu í samfélaginu? Á hugtakið vanhæfi ekki við í íslensku háskólasamfélagi. Þarf háskólasamfélagið ekki að hefja sig upp yfir allan vafa? Held að það hljóti að vera krafa samtímans og ekki síst í ljósi þeirra hremminga sem íslenskt þjóðfélag hefur átt í síðustu ár.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)