sunnudagur, 23. september 2007

Er Mogganum illa við æsku þessa lands

Hef átt samleið með Morgunblaðinu um langt skeið, hefur fundist margt þar á bæ vel gert og Mogginn í raun haft ákveðin standard. Hef reyndar allt aðra pólitíska ideologiu en praktiseruð er á blaðinu. Eitt af því sem Mogginn hefur haft í þokkalegu standi og sennilega best íslenskra fjölmiðla hingað til er t.d sú hófsemi sem blaðið hefur sýnt í meðhöndlun áfengisauglýsinga sem eins og kunnugt er eru algerlega ólöglegar. Með þeirri stefnu sinn fannst mér Mogginn sýna mun meir ábyrgð en t.d RÚV sem þverbrýtur þessi lög átölulaust kvöld eftir kvöld og vanvirðir kerfisbundið lögvarin rétt barna og unglinga til þess að vera laus við áróður af þessu tagi.

Nú er greinilega heldur betur af sem áður var hjá Mogganum því í blaðinu í morgun eru a.m.k. fimm heilsíðu áfengisauglýsingar. Sami gamli útúrsnúningurinn um "léttöl" í eins umbúðum og áfengi og fæst hvergi eða í besta falli nokkrar flöskur í horni einhverrar ótilgreindrar verslunar. Í Svíþjóð hefur dómskerfið meðhöndlað þessar auglýsingar sem útúrsnúning og vanvirðu við siðferðilegan boðskap sambærilegra laga og hér eru. Fyrir áhugfólki um dómsmál má benda á hinn s.k. Åbrodóm.

En hvað með það Mogginn kominn í félagsskap þeirra sem misvirða rétt barna- og unglinga og virða lög um bann við áfengisauglýsingum að vettugi. Ekki dettur mér í hug að eiga frekari samneyti við slíka aðila. Áfengisauglýsingar með morgunkorninu er ekki sá pakki sem ég býð mínum börnum upp á - sagði því upp áskrift minni dags dato og fór með bloggið á fornar slóðir. Synd að Mogginn geti ekki hafið sig upp yfir þessa lágkúru.

1 ummæli:

  1. Heill og sæll,
    Sviþjóð er nú kanski ekki það Paradís eins og þegar þú bjóst hér! Mogginn er nú bara eins og önnur dagblöð "making money"
    í fyrsta lagi þá kom marknaðsdómstóllinn með dóm 2003 och i DN 5 júlí má lesa að auglýsingar þar sem alkohól kemur við sögu hafa stóraukist
    http://www.marknadsdomstolen.se/avgoranden2003/Dom03.05.pdf
    http://www.dn.se/DNet/jsp/polopoly.jsp?a=668208
    Svona er nú lífið í henni Svíþjóð

    SvaraEyða