Undarlegt að sjá undir iljarnar á helstu talsmönnum "hugmyndafræði frjálshyggjunnar" þegar að talið berst að ábyrgð ! Vondir karlar í “góðu kerfi” er hið staðlaða svar – hefur maður ekki heyrt þessa frasa áður og voru það ekki akkurat menn eins og hugmyndfræðingurinn Hannes Hólmsteinn og hans lærisveinar sem gerðu grín að svona rökum hér í eina tíð. Þótti ekki góð retorik í þá daga en að virðist nýtileg í nauðvörn frjálshyggjunnar um þessar mundir. Verst auðvitað ef að menn afneiti tengslum við hugmyndakerfið með öllu, svona svipað eins og í Markúsarguðspjalli 14:72
Í Chile frjálshyggjunnar var mikið haft fyrir “góðu körlunum” – eitt stykki her nýttur til að halda hugmyndafræðinni gangandi sem reyndar átti einnig við í Sovétinu sáluga – Alltaf erfitt þegar að almúginn passar ekki inn í hugmyndakerfi aðalsins hverju nafni sem hann kann að nefnast hverju sinni - skiptir þá í engu hvort átt er við fullkomlega misheppnaða brauðmolahagfræði frjálshyggjunnar eða alræði Sovétsins sáluga.
Þú mátt ekki rugla saman frjálshyggjunni og mönnum, sem e.t.v. hafa einhvern tímann verið kallaðir "frjálshyggjumenn", en hafa kannski bara verið fylgjandi henni á sumum sviðum en ekki öðrum. Sá sem beitir her fyrir sig getur t.d. aldrei talist vera sannur frjálshyggjumaður og sá sem var fylgjandi þeim pilsfaldakapitalsma sem ríkti og ríkir í fjármálakerfi heimsins er ekki frjálshyggjumaður.
SvaraEyðaFrjálshyggjan gengur út á þá hugsjón, að mönnum sé frjálst að gera það sem ekki skaðar aðra. Ríkisábyrgð á skuldbindingum banka og annarra fjármálastofnana flokkast því aldrei undir frjálshyggju, þar sem skattborgarar þurfa að taka á sig tap bankanna ef illa fer. Alveg sama hvað Hannes Hólmsteinn, eða aðrir "frjálshyggjumenn", sögðu á sínum tíma.
Útgangspunktur frjálshyggjunnar er, að menn beri ábyrgð á eigin gjörðum. Svo einfalt er það.