mánudagur, 22. september 2008

Brighton & Hove Albion

Nú hafa veður skipast með þeim hætti að ég hef gerst áhangandi hins léttleikandi enska knattspyrnuliðs Brighton & Hove Albion. Er reyndar Everton maður en viðurkenni fúslega að ég er nokkuð súr út í þá þar sem vinur minn, einn efnilegast leikmaður landsins um þessar mundir, Bjarni Þór Viðarsson fékk takmarkaða möguleika á því að spila með klúbbnum þann tíma sem var þar á mála?. Hitt er svo annað mál að Mávarnir eins og BHA er gjarnan nefnt á tungu þarlendra er í fyrstu deildinni og nokkuð vandfarin vegferð í úrvalsdeildina – ég mun því ekki lenda í neinni teljandi krísu vegan innbyrðis leikja þessara tveggja turna í enskri knattspyrnu –a.m.k. ekki fyrst um sinn –segi því bara den tid den sorg - Sett tilvísun á heimasíðu Mávanna hér til vinstri.

2 ummæli:

  1. Sæll
    Velkominn í klúbb áhanganda neðrideilda enskrar knattspyrnu.
    Eins og alþjóð veit hef ég haldið með Schunthorp United í 20 ár eða u.þ.b. og aldrei látið deigan síga í þeim efnum. Þetta eru efnilegir klúbbar sem verða kannski aldrei "stórir" en hvað um það, ekkert verri en þessir stóru enda kemur stór hluti leimanna stóru klúbbana frá þessum uppeldisstöðvum fótboltans.
    Læt hér fylgja með slóðina á heimasíðu Schunthorp http://www.scunthorpe-united.premiumtv.co.uk/page/Home
    Bestu kveður, go
    Sorry að við skildum vinna svona stórt þann 6. sept.

    Guðbjörn

    SvaraEyða
  2. Mínir menn tóku Man City í nefið í bikarnum unnu 5- 2 eftir vítaspyrnukeppni. Þess vegna fyrirgefur maður mönnum tapið á móti Schunthorp og ekki síst 1- 0 tapið á móti Walshall um daginn þar sem mínir menn voru tveimur mönnum fleiri nánast allan leikinn! Mávarnir spila að mínu mati sannfærandi kick and run bolta eins og hann gerist bestur og þegar að best lætur í tæklingunum þá má setja niður jarðepli í förin án mikillar fyrirhafnar. Sem sagt afar áferðarfalleg knattspyrna þar sem ekki er sjálfgefið að betra liðið vinni eins og dæmin sanna. Megi Schunthorp ganga vel en þó með þeim fyrirvara að þeir skyggi ekki á Mávana. Bestu kveðjur norður yfir heiðar

    SvaraEyða